Njótið stórkostlegrar ferðar um Yucatán-skaga í Mexíkó, auk Belíz og Gvatemala, þar sem áhersla er lögð á náttúru, dýralíf, menningu Maya-fólksins, stórbrotið landslag og ævintýri.
Í ferðinni gefst þátttakendum einstakt tækifæri til að kynnast samfélögum Maya-fólksins, og heyra af eigin raun um sterk tengsl þeirra við náttúruna, dýralífið og fjölskylduna. Gestir fá innsýn í einstaka lífssýn þeirra og lífshætti.
Þetta er afar fjölbreytt ferð sem sameinar fornleifar Maya-menningarinnar, frumskóga, fossa, Karíbahafsstrendur, frumbyggjamenningu og einstaka náttúru í þremur löndum
Verð
- Verð per mann í 2ja manna herbergi 887.500kr.
- Verð per mann í einstaklingsherbergi 1.025.000kr.
Hvað er innifalið?
- Flug með sköttum og tösku alla leið
- 3 - 4 stjörnu hótel með morgunmat alla daga
- Gisting eina nótt í New York
- Hálft fæði
- Allur flutningur á milli staða í rútu með loftræstingu
- Allar skoðunarferðir í ferðaáætlun og aðgangur
- Íslenskur fararstjóri alla ferðina og innlendur enskumælandi fararstjóri erlendis