Dagur 1 – 21. janúar - NY
Flogið til NY/JFK með Icelandair og farið inná hotel á Manhattan COURTYARD BY MARRIOTT/UPPER EAST SIDE
Dagur 2 – 22. janúar Cancún – Playa del Carmen
Flogið frá NY/JFK til Cancun með Jetblue og lent í Cancun
Við komu á alþjóðaflugvöllinn í Cancún hefst ferðalagið um mexíkóska Karíbahafssvæðið. Eftir vegabréfa- og tollskoðun er ekið suður til Playa del Carmen (um 60 km) þar sem farið er um gróskumikla hitabeltisnáttúru og með útsýni yfir túrkísbláa strandlengjuna.
Við komu er innritum við okkur á hótel og tími gefinn til að slaka á áður en farið er í göngu um líflegt miðbæjarsvæði Playa del Carmen. Síðdegis er gengið um hina frægu Quinta Avenida (5. breiðgötu), göngugötu sem iðar af lífi með verslunum, kaffihúsum, handverksbúðum og sölubásum sem endurspegla anda Riviera Maya svæðisins.
Um kvöldið er kvöldverður á veitingastað áður en haldið er aftur á hótel.
Gisting: Hotel Las Golondrinas, Playa del Carmen
Dagur 2 – 23. janúar Akumal – Sjóskjaldbökur og Chicanná
Brottför snemma morguns til Akumal, fallegs flóa við Karíbahafsströndina sem er þekktur fyrir rólegt, tært vatn og fjölbreytt sjávarlíf.
Þar er farið í snorkelferð með leiðsögn þar sem hægt er að synda með villtum sjóskjaldbökum í náttúrulegu umhverfi þeirra á Mið-Amerísku kóralrifakeðjunni, þeirri næststærstu í heimi.
Eftir snorklun er ekið inn í land að Chicanná Ecovillage (um 5 klst.), vistvænu gistisvæði í miðjum frumskógi Yucatán-skagans.
Kvöldverður og afslöppun innan um hljóð og fegurð frumskógarins.
Gisting: Hotel Chicanná EcoVillage
Dagur 3 – 24. Janúar Calakmul og Palenque
Snemma morguns er haldið til Calakmul náttúruverndarsvæði ,sem er á heimsminjaskrá UNESCO og eitt mikilvægasta fornleifasvæði Maya-menningarinnar.
Gengið er um frumskógastíga þar sem pýramídar og fornar rústir rísa upp úr trjákrónunum. Á leiðinni má sjá öskrandi apa, túkana, dádýr og fjölbreytt hitabeltisdýr.
Síðdegis er ekið áfram til Palenque í Chiapas-ríki (um 6 klst.).
Gisting: Hotel Los Leones, Palenque
Dagur 4 – 25. janúar
Palenque og Roberto Barrios-fossarnir
Heimsókn á eitt merkasta fornleifasvæði Maya-menningarinnar, Palenque. Þar má skoða hof, hallir og helgar byggingar sem bera vitni um háþróaða þekkingu Maya-fólksins.
Síðdegis er haldið að Roberto Barrios-fossunum, fallegum fossum með túrkísbláum náttúrulaugum þar sem hægt er að synda og njóta kyrrðarinnar í náttúrunni.
Þar gefst einnig tækifæri til að hitta Maya-fólk sem býr í afskekktum héruðum Chiapas.
Gisting: Hotel Los Leones, Palenque
Dagur 5 – 26. janúar 2027
Fossar Chiapas og San Cristóbal de las Casas
Ekið til San Cristóbal de las Casas um stórbrotið landslag Chiapas.
Á leiðinni er val um heimsókn að:
Síðan er ekið áfram til San Cristóbal de las Casas.
Borgin er þekkt fyrir steinlagðar götur, litríkar byggingar og ríka frumbyggjamenningu. Talið er að yfir 50 mismunandi ættbálkar og menningarhópar búi á svæðinu.
Gisting: Hotel Casa Mexicana
Dagur 6 – 27. janúar
San Cristóbal – Chamula og Zinacantán
Í dag skoðum við hinn heillandi bæ San Cristóbal de las Casas, sem er þekktur fyrir fallegan gamlan nýlendustíl, hellulagðar götur, litríka markaði og líflegt menningarlíf. Labbaðu um iðandi torgin og handverkshúsin á meðan þú nýtur þessarar einstöku blöndu af hefðum frumbyggja og sögulegum nýlendustíl sem einkennir borgina.
Síðar um daginn heimsækjum við nærliggjandi samfélög Mayana í San Juan Chamula og Zinacantán, þar sem aldagamlir siðir og venjur spila enn stórt hlutverk í daglega lífinu. Í Chamula færðu að upplifa heillandi blöndu af trú Mayafólksins og kaþólskum áhrifum inni í dómkirkju bæjarins. Í Zinacantán lærirðu svo um hefðbundnar vefnaðaraðferðir og handverkið sem samfélagið er þekkt fyrir. San Cristóbal, San Juan Chamula og Zinacantán eru klárlega magnaðir staðir til að sjá hvernig Mayafólk dagsins í dag lifir og reynir að aðlagast nútímalífinu.
Komum svo aftur til San Cristóbal seinnipartinn og eigum afslappað kvöld í þessum dásamlega bæ.
Gisting: Hotel Casa Mexicana
Dagur 7 – 28. janúar 2027
Frjáls dagur í San Cristóbal
Njóttu þess að eiga heilan dag til að upplifa San Cristóbal de las Casas á þínum eigin hraða. Gefðu þér tíma til að rölta um heillandi göturnar, kíkja á söfn staðarins, skoða litríka handverksmarkaði eða slaka á á einu af notalegu kaffihúsunum sem eru þekkt fyrir frábært Chiapas-kaffi.
Fyrir þá sem vilja meira ævintýri er boðið uppá val að fara í hálfs dags ferð í Sumidero-gljúfrið. Þar siglirðu á bát í gegnum þetta magnaða náttúruundur, þar sem gnæfandi klettar rísa tignarlega upp úr Grijalva-ánni og oft má koma auga á dýralíf eins og krókódíla, apa og framandi fugla á leiðinni.
Gisting: Hotel Casa Mexicana
Dagur 8 – 29. janúar 2027
Gvatemala – Flores
Í morgunsárið höldum við snemma af stað í átt að landamærunum við El Ceibo og keyrum í gegnum afskekkt en fallegt landslag sem tengir suðurhluta Mexíkó við Gvatemala (ferðin tekur um 6–7 tíma í heildina). Við komuna þangað förum við í gegnum vegabréfaeftirlit og landamæraverði áður en haldið er áfram inn á Petén-svæðið.
Ferðalagi dagsins lýkur í Flores, sem er heillandi eyjabær við bakka Petén Itzá-vatnsins. Bærinn er þekktur fyrir litrík hús, afslappaða stemningu og fallegt útsýni yfir vatnið.
Eftir að við tékkum okkur inn getum við fengið okkur göngutúr meðfram vatninu í sólsetrinu og notið friðsældarinnar í bænum. Um kvöldið borðum við svo á veitingastað við vatnsbakkann og slökum á um leið og við komum okkur fyrir í Gvatemala-hluta ferðarinnar.
Gisting: Hotel Casona de La Isla, Flores
Dagur 9 – 30. janúar 2027
Tikal og Belís
Byrjaðum daginn snemma á því að fara í Tikal-þjóðgarðinn, en þar er ein merkilegasta og þekktasta borgin úr gamla Mayaveldinu. Þessi staður er á heimsminjaskrá UNESCO og er falinn inni í miðjum regnskóginum Gvatemala. Þarna færðu frábæra blöndu af sögu, fornleifum og dýralífi. Þú getur skoðað risastór musteri og gömul torg á meðan leiðsögumaðurinn segir þér söguna af þessari öflugu siðmenningu. Labbaðu upp á pýramídana til að fá frábært útsýni yfir frumskóginn, þar sem hljóðin í öskruöpum, hitabeltisfuglum og ceiba-trjánum skapa einstaka stemningu. Eftir heimsóknina keyrum við yfir til San Ignacio í Belíz, sem tekur um 3–4 tíma. Það er mjög notalegur bær í sveitinni, umkringdur fallegri náttúru nálægt Mayafjöllunum. Við mætum svo þangað um kvöldið, beint í kvöldmat og kærkomna hvíld.
Gisting: Hotel Nabitunich eða sambærilegt nabitunichbelize.com
Dagur 10 – 31. janúar 2027
Caye Caulker
Í morgunsárið færum við okkur yfir til Belísborgar (um 2 tíma ferðalag) áður en við förum um borð í ferju sem siglir yfir grænblátt Karíbahafið til hinnar afslöppuðu eyju Caye Caulker (um 1 tíma sigling). Þessi heillandi og bíllausa eyja er þekkt fyrir rólegt andrúmsloft og lífsstíl þar sem slagorðið er „taktu lífinu með ró“, og hún býður upp á hina fullkomnu hitabeltisparadís.
Við komuna tékkum við okkur inn á hótelið og komum okkur fyrir. Afslappað síðdegi á eigin vegum – slakað á á ströndinni, leigt hjól til að skoða sandgöturnar á eyjunni eða einfaldlega rölt um litríku húsasundin þar sem kaffihús, strandbarir og litlar handverksbúðir standa í röðum. [1]
Þegar líður á daginn njótum við friðsæla Karíbahafsloftslagsins og hins rólega takts sem gerir Caye Caulker svo ógleymanlega.
Gisting: Hotel Enjoy
Dagur 11 – 1. febrúar 2027
Snorkel á Belíz-rifinu
Í dag förum við í dagsferð, köfunarleiðangur á einu besta rifinu við Caye Caulker, þar sem hægt er að sjá og njóta ríks dýralífs. Rifið er eitt frægasta vistkerfi Belís og hluti af hinu stóra Belís-rifi. Þetta verndaða svæði er þekkt fyrir tæran sjó og ótrúlegan líffræðilegan fjölbreytileika, og býður upp á ógleymanlega upplifun undir yfirborði Karíbahafsins.
Þarna syndirðu á milli litríkra kóralrifja og sérð ótrúlegt úrvali af sjávarlífverum, þar á meðal hákarla (nurse sharks), skötur, sjóskjaldbökur, hitabeltisfiska og öðrum spennandi dýrum sem þrífast á þessu verndaða svæði. Við stoppum á nokkrum mismunandi stöðum yfir daginn, svo þú færð gott tækifæri til að njóta fegurðarinnar og lífríkisins í neðansjávarheimi Belíz.
Eftir að komið er aftur í land getum við slakað á, á ströndinni , skoðað okkur um á þessarri Paradisareyju. Þá er ekki úr vegi að fá sér ferskan fisk og skelfisk á einum af veitingastöðunum við ströndina á Caye Caulker.
Til að kóróna daginn er svo hægt að fara í valfrjálsa siglingu í sólsetrinu, þar sem þú færð dásamlegt útsýni yfir Karíbahafið á meðan himinninn litast af kvöldroðanum.
Gisting: Hotel Enjoy
Dagur 12 – 2. febrúar
Bacalar
Í morgunsárið förum við um borð í ferjuna til Chetumal í Mexíkó og njótum þess að sigla í síðasta sinn yfir grænblátt Karíbahafið. Við komuna þangað förum við í gegnum toll- og vegabréfaeftirlit áður en haldið er áfram landleiðina til hinnar fallegu bæjar Bacalar.
Bacalar er þekktur fyrir lónið sitt, sem er kallað „Lón sjö lita“ vegna fegurðar sinnar. Þetta er tært ferskvatnslón þar sem mismunandi dýpi myndar ótrúlega flotta bláa litatóna svo langt sem augað eygir.
Eftir að við tjékkum okkur inn á hótelið getum við átt afslappað síðdegi á eigin vegum og notið kyrrðarinnar í þessari paradís við vatnið. Hægt að synda í rólegu og hressandi vatninu, slakað á við ströndina eða einfaldlega notið náttúrufegurðarinnar og friðarins sem gerir Bacalar að einni af földu perlu svæðisins.
Gisting: Hotel Amarbacalar
Dagur 13 – 3. febrúar
Riviera Maya
Frjáls morgunn við Bacalar-lónið.
Njóttu þess að eiga rólegan morgun í Bacalar, umvafinn friðsælli fegurð Lóns sjö lita. Gefðu þér tíma til að upplifa lónið á þínum eigin hraða – hvort sem þú ferð á kajak um rólegt vatnið, prófar brettasiglingu (paddleboarding) meðfram ströndinni, eða slakar einfaldlega á og nýtur ótrúlegu bláu litatónanna sem gera þennan stað svo einstakan.
Um miðjan daginn hefst ferðin norður á bóginn í átt að Riviera Maya. Keyrt er í gegnum gróðursælt landslag Yukatanskaga til Puerto Morelos (um 4 tíma akstur). Frjáls timi það sem eftir lifir dags.
Hotel Anand EcoAldea (Puerto Morelos) eða sambærilegt anandecoaldea.com
Dagur 14 – 4. febrúar
Slökunardagur
Frjáls dagur til að njóta umhverfisins
Gisting: Hotel Anand EcoAldea
Dagur 15 – 5. febrúar
NY
Morgunverður á hóteli og síðan akstur á flugvöll í Cancun og flogið til NY, þaðan förum við á sama hótelið og þegar við komum.
COURTYARD BY MARRIOTT/UPPER EAST SIDE
Dagur 16 – 6. febrúar
Flogið til Keflavikur með Icelandair kl 19.25