Útskriftarferð Mexíko - All inclusive & New York

Útskriftarferð Mexíko - All inclusive & New York

Ertu til í ógleymanlega útskriftarferð til New York og Playa del Carmen í Mexíkó?

Fagnaðu stóra áfanganum á Viva Maya by Wyndham – alhliða (all-inclusive) paradísarhóteli á hvítri karíbahafsströndinni! Hér þarftu ekki að hugsa um neitt annað en að njóta: matur og drykkir eru innifaldir allan sólarhringinn, með frábæru úrvali af veitingastöðum sem seðja alla bragðlauka.

Hótelpakkinn er hlaðinn ævintýralegri afþreyingu! Kafaðu í karíbahafið, skelltur þér á kajak eða paddleboard, skoraðu á félagana í strandblak eða slakaðu á við risastóra sundlaugarsvæðið. Og þegar sólin sest tekur næturlífið við – með stuttri leið í heimsþekkta klúbba eins og Coco Bongo og stanslausa veislustemningu á 5th Avenue.

Frábær matur, endalaus afþreying, sól, strönd og tryllt djamm – Playa del Carmen og Viva Maya by Wyndham tryggja að útskriftarferðin verður söguleg!

Um ferðina

Við hjá Trans-Atlantic erum sérfræðingar í ferðalögum til Mexíkó og nágrannalöndunum Guatemala og Belize, enda höfum við verið á þessum slóðum á hverju einasta ári með útskriftarnema og fleiri síðan 2005 og fengið að njóta þeirra forréttinda að þjónusta þúsundir ánægðra útskriftarnema og annarra farþega á þessar slóðir.

Við fljúgum með Icelandair frá Keflavík til JFK flugvallar í New York í USA. Á leiðinni til Mexíkó gistum við áður en haldið er áfram í næsta flug með JetBlue Airlines frá sama flugvelli til Cancun flugvallar í Mexíkó. Í New York er dvalið á Courtyard by Marriott Manhattan / Upper East Side.

Við komu til Mexíkó er tekið á móti okkur og ekið með rútum eftir Riveria Maya ströndinni til bæjarins Playa del Carmen, en á Playa del Carmen hótelsvæðinu er að finna okkar hótel sem er Viva Maya by Wyndham.

Hvað er innifalið í ferðinni?

  • ✈️ Flug, Icelandair og Jetblue með sköttum og tösku
  • Rúta til og frá flugvelli í New York
  • 4* Hótel á Manhattan New York
  • Rúta til og frá flugvelli í Mexico
  • 4* Hótel Resort Viva Maya by Wyndham Maya - All Inclusive
  • Matur, allir drykkir á Viva Maya Resort
  • Ótrúlegt magn afþreyingar er innifalið, yfir 40 ólík atriði sem gera dvölina alveg sérlega ánægjulega og skemmtilega
  • Einkaströnd með þjónustu
  • Íslenskur farastjóri

Hótelið - Viva Maya by Wyndham

Hótelið er með 480 herbergi. Öll með loftræstingu, ýmist útsýni yfir garð eða beint út á spegilslétt hafið. Öll herbergi hafa gervihnattarsjónvarp, sér baðherbergi og síma. Á hótelinu er að finna veitingastaðina Portofino, La Terraza, Haciendo Don Diego, Miramare og snakkbar, Lobby bar með lifandi tónlist á kvöldin, söluaðstöðu fyrir ferðasölu, internetaðstöðu, þráðlaust net á hótelinu, líkamsrækt, tennisvelli, 3 sundlaugar, sólbekki og handklæði, 2 sundlaugarbari, einkaströnd, dagleg herbergisþrif, læknisþjónustu, klifurvegg og bogfimi. Þá er á hótelinu boðið upp á myndatökur, smá ferðamannaverslun, gjaldeyrisþjónusta og margt annað.Þá er á hótelinu Renova Spa sem er náttúruleg heilsulind sem býður ma. upp á ýmis konar nudd, heilsumeðferðir og aðgang að líkamsrækt sem og hárgreiðsluþjónustu. Þjónusta frá þessu Spa er hægt að fá gerða niður á strönd ef pantað er sérstaklega.Hótelið hentar alveg einstaklega yngri pörum, skólahópum og barnafólki. Hótelið er í cirka 15 mínútna göngufjarlægð frá Fimmtu breiðgötu (Fifth Avenue) í miðbæ Playa del Carmen.Hótelið er flokkað undir 4 stjörnur.

Heimasíða Viva Maya by Windham

Hvað er innifalið á Viva Maya by Windham

Viva Maya by Wyndham Resorts, bæði hótelið okkar sem og systurhótelið Azteka eru hluti af svokallaðri All Inclusive Program sem táknar raunverulega að eiginlega flest allt er innifalið í þinni gistingu. Svo eitthvað sé nefnt:

  • Morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur - hlaðborð
  • Sértækir veitingastaðir reknir á hótel svæðinu í allar máltíðir (þarf að panta borð með fyrirvara)
  • Ótakmarkaðir drykkir – bæði áfengislausir sem áfengir
  • Snakk allan sólarhringinn
  • Ávextir og drykkir veittir af þjóni á ströndinni og við sundlaugina tvisvar á dag
  • Kokteill við komu
  • Heilsufæði sé þess óskað (þarf að láta hótel vita fyrir komu)
  • Öryggishólf í herbergi
  • Straujárn og borð í herbergi
  • Tónlistarstöðvar í herbergi
  • Herbergjaþrif daglega og skipt um handklæði alla daga
  • Skipulagt viðburðar prógram á hverjum degi s.s. kvöldsýningar (Show)
  • Sundlauga- og strandleikir með verðlaunum í boði
  • Útisundlaugar og sundlaugabar
  • Þemakvöld, partí og kvöldmatur
  • Lifandi tónlist
  • Danstímar í karabískum dönsum
  • Danskeppni með verðlaunum í boði
  • Alþjóðlegt lið skemmtikrafta
  • BQ grill á ströndinni yfir daginn
  • Líkamsrækt með þjálfara
  • Matreiðslutímar í mexíkóskri matreiðslugerð
  • Kennslutímar í gerð kokteila
  • Förðunartímar Stólar og handklæði við ströndina og sundlaugina
  • Vikulegur handverksmarkaður þar sem innlendir aðilar bjóða úrval af ýmsum varningi til sölu
  • Seglbretti með ókeypis kennslu
  • Siglingar með ókeypis kennslu
  • Kano (eða kayak)
  • Kennslutími í köfun
  • Vatnapóló / Vatnaleikfimi
  • Tennis með ókeypis kennslu
  • Fótbolti
  • Eróbik
  • Teygjuæfingar
  • Bogfimi með ókeypis kennslu
  • Klifurveggur
  • Reiðhjól til afnota
  • Boogie bretti
  • Strand og sundlauga blak
  • Bocce bolti á ströndinni
  • Strandhandklæði daglega
  • Sólbekkir án gjalds á ströndinni

 

*Afþreying skv. ofangreindum lista getur breyst skv. ákörðun hótelsins án fyrirvara

Djamm Mexico - Playa Del Carmen

Playa del Carmen er þekkt fyrir líflegt og kröftugt næturlíf sem snýst að mestu leyti í kringum hina frægu 5. breiddargötu (Quinta Avenida) og stemningsmiklu strandklúbbana meðfram ströndinni. Hvort sem þig langar að dansa undir berum himni á sandinum eða upplifa stanslausa veislustemningu á stórum skemmtistöðum, lifnar bærinn svo um munað þegar sólin sest.

CoCoBongo

Sjálfur hápunktur næturlífsins í Playa del Carmen er án efa Coco Bongo. Þetta er miklu meira en bara venjulegur skemmtistaður; Coco Bongo býður upp á heimsklassa sýningu sem er stútfull af fimleikafólki, hermi- og skemmtikröftum, sviflistamönnum og stórbrotinni ljósasýningu. Þetta er ógleymanleg upplifun þar sem konfettíið rignir og tónlistin stoppar aldrei allt fram á rauða nótt.

CocoBongo

Dæmi um skoðunarferðir

Vinsælustu skoðunarferðirnar, smelltu hér
Sýnishorn af skoðunarferðum - Myndband

15 hlutir sem þú gætir gert í Playa Del Carmen - Myndband

Hagnýtar upplýsingar

Veður
Meðalhitastig yfir árið er 26 gráður á Celsius. Meðalhiti í júní, júlí, ágúst og september er 28 gráður hvern mánuð. Hæstur er hitinn í maí, að meðaltali 29 gráður.

Bólusetningar
Öllum þeim sem fara til Mexico er ráðlagt að hafa samband við heilsugæsluna og fá upplýsingar. Sumir þurfa ekki bólusetningu á meðan aðrir þurfa hana

Samgöngur og samskipti
Samgöngur eru góðar, breiður þjóðvegur liggur þvert eftir Yucatan skaganum frá Cancun að landamærum Belize. Rútur, leigubílar og bílaleigubílar eru til staðar. Þá er lítill flugvöllur í Playa Del Carmen. Ferjur fara frá Playa Del Carmen m.a til Cozumel
Netkaffi eru víða í Playa Del Carmen og nálægum bæjum og hótelin hafa nettengingu
Símaklefar eru víða. Það er þó dýrt að hringja, mun dýrara en frá Íslandi. Pósthús eru í öllum bæjum

Rafmagn
Rafmagn er 110 volt, þarf því millistykki ætli maður að hlaða rafmagstæki sem komið er með frá Íslandi

Tími
Klukkan er 6 tímum á eftir íslenskum tíma

Peningar
Pesos er opinber gjaldmiðill, en Dollarar ganga allsstaðar og jafnvel Evra

Tungumál
Spænska er opinbert mál landsins. Mayar sem eru fjölmennir á Yucatan skaganum tala sitt Maya mál. Enska er víðast hvar töluð.

Heimasíður með viðbótar upplýsingum

Spennandi ferðir
Almennt um Mexico
Almennt um Yucatan skaga
Kort af Yucatan skaga
Alm. Riviera Maya
Playa Del Carmen
Bærinn Punta Allen
Cozumel eyja

Myndbönd og myndir

Sýnishorn úr fyrri ferðum