Dagur 1 | 3. September
Áfangastaðir: Riga, Lettland | Tashkent, Úsbekistan
Ferðin hefst á flugi með íslenska fararstjóranum okkar frá Keflavík klukkan 00:45 til Riga í Lettlandi þar sem við lendum klukkan 07:20. Frá flugvellinum förum við upp á hótelið okkar, Tallink Hotel Riga og náum stuttri hvíld.
Seinni leggur ferðalagsins þennan dag er flug frá Riga til Tashkent, höfuðborgar Úsbekistan, klukkan 15:00 og áætluð lending þar klukkan 22:30. Við verðum sótt á flugvöll og keyrð á hótelið okkar, Ramada Tashkent.
Dagur 2 | 4. September
Áfangastaðir: Tashkent, Úsbekistan | Samarkand, Úsbekistan
Dagurinn hefst með morgunverði á hótelinu áður en við förum í skoðunarferð um höfuðborgina. Við munum margt spennandi þennan daginn eins og Hazrati Imam Complex sem er samansafn af tilkomumiklum byggingum sem voru reist nærri gröf Hazrati Imam, einum af fyrstu predikurum Islam í borginni. Einnig heimsækjum við Barak Khan madrasah sem var upphaflega byggt sem skóli til að kenna fræði Islam á 16. öld en er kannski þekktastur fyrir að geyma elsta núlifandi eintak Kóransins og Chorsu Bazaar markaðinn sem er í hjarta gamla borgarhlutans þar sem við fáum spennandi innsýn í daglegt líf heimamanna. Við prófum síðan að ferðast með neðanjarðarlest borgarinnar sem þjónaði sem eitt af þrettán slíkum lestarkerfum Sovétríkjanna, þessi mögnuðu mannvirki eru lítið þekkt sökum þess að öll myndataka var bönnuð í þeim þar til árið 2018 - upphaflega hugmyndin á bakvið kerfin var að það myndu þjóna sem kjarnorkubyrgi ef kæmi til átaka við vestrið.
Amir Temur Square torgið er hlaðið sögu Úsbekistan. Upphaflega byggt árið 1882 af Nikolai Ulyanov í þjónustu rússneska keisaraveldisins, endurbyggt og endurnefnt sem Revolution Square í kjölfar rússnesku byltingarinnar árið 1917 þá sá torgið reistar styttur af Stalín sem síðar voru rifnar niður og loks eftir að Sovétríkin liðu undir lok fékk torgið núverandi nafn sitt - Amir Temur eða Independence Square til að fagna sjálfstæði þjóðarinnar.
Við endum daginn á að heimsækja ríkisrekna listasafnið Museum of Applied Art þar sem sýnd eru þúsundir verka af öllum toga frá útskurði til útsaumar og skartgripahönnunar.
Við endum daginn með ferðalagi til borgarinnar Samarkand þar sem við gistum á Emirkhan Hotel.
Dagur 3 | 5. September
Áfangastaðir: Samarkand, Úsbekistan
Dagurinn hefst með morgunverði á hótelinu áður en við förum í lestarferð til borgarinnar Samarkand og í skoðunarferð um hana. Við byrjum á að heimsækja Gūr-i Amīr grafhýsið, eitt mikilvægasta kennileiti borgarinnar í augum heimamanna, sem var reist fyrir tilskipan Amir Temur og nafnið má lauslega þýða sem “Gröf Konungsins”. Næst skoðum við Registan torgið sem var hjarta borgarinnar þegar hún tilheyrði Timurid heimsveldinu og Bibi-Khanym moskuna sem á 15. öld var ein stærsta og glæsilegasta moska veraldar. Um miðja 20. öldina hafði ástandinu hnignað töluvert en hún fór í gegnum mikla endurbyggingu á tímum Sovétríkjanna.
Siab Bazaar er stærsti slíki markaðurinn í Samarkand, staðsettur nærri Bibi-Khanym moskunni og er gríðarlega vinsæll áfangastaður fyrir bæði heimamenn og ferðalanga sem vilja upplifa menningu Úsbekistan. Við endum daginn á heimsókn til Shah-i-Zinda sem er samnefni yfir fleiri en tvo tugi af trúar- og menningarlega dýrmætum byggingum sem voru reistar yfir nokkurra alda tímabil.
Við endum daginn á hóteli okkar, Emirkhan Hotel.
Dagur 4 | 6. September
Áfangastaðir: Mitan, Úsbekistan | Samarkand, Úsbekistan
Dagurinn hefst með morgunverði á hótelinu áður en við keyrum til þorpsins Mitan. Í heimsókn okkar hér munum við meðal annars fá master-class kennslu í matargerð að hætti heimamanna, skoða akra þeirra þar sem bómull er ræktuð, eiga notalega stund með fjölskyldu sem býr á svæðinu og þau segja okkur frá lífi sínu og þorpsins. Við snæðum saman hádegisverð í þorpinu. Þessi skoðunarferð er einstakt tækifæri til að týna sér í töfrum daglegs lífs Uzbekistan áður en við höldum aftur til hótelsins okkar, Emirkhan Hotel, í Samarkand.
Dagur 5 | 7. September
Áfangastaðir: Afrasiyab, Úsbekistan | Konigil, Úsbekistan | Samarkand, Úsbekistan
Dagurinn hefst með morgunverði á hótelinu. Þennan dag munum við heimsækja Ulugh Beg Observatory stjörnuskoðunarstöðina sem var byggð um ~1420 af stjörnufræðingnum Ulugh Beg. Stöðin var miðstöð slíkra rannsókna og fræða í mið-Asíu lengi vel.
Hodja Daniyar Mausoleum er hinsti hvíldarstaður Khodja Daniyar, spámannsins Daníels og er áfangastaður pílagríma múslima, gyðinga og kristna. Næst heimsækjum við Afrasiab Museum við fornleifasvæðið Afrasiyab sem er eitt stærsta sinnar tegundar í heiminum og það elsta í Samarkand. Safnið segir frá stofnun Samarkand, sögu hennar og byggð Afrasiyab.
Við endum skoðunarferð dagsins í þorpinu Konigil þar sem við skoðum pappírsverksmiðju frá byrjun 8. aldar - líftími pappírsins sem var framleiddur hér er talinn vera um ~400 ár sem er stórmerkilegt í samanburði við áætlaðan líftíma pappírs nútímans. Að lokinni heimsókninni höldum við aftur til Samarkand og hótelsins okkar, Emirkhan Hotel.
Dagur 6 | 8. September
Áfangastaðir: Amirsoy, Úsbekistan | Charvak Lake, Úsbekistan | Tashkent, Úsbekistan
Dagurinn hefst með morgunverði á hótelinu. Að honum loknum er stefnan á Amirsoy skíðasvæðið í Gora Maygashkan fjalli og Charvak vatnsins. Á leið okkar þangað ferðumst við um sérlega fallega náttúru með einstöku útsýni yfir Ugam-Chatkal þjóðgarðinn. Þegar við komum á áfangastað okkar, Amirsoy, förum við upp á tind með kláf, það ferðalag tekur um ~10 mínútur frá upphafi til enda. Þegar við erum komin upp er frjáls tími þar sem við fáum tækifæri til að ganga um og njóta þessa ótrúlega útsýnis sem fæst í 2.290 metra hæð og taka ljósmyndir til að festa ferðina á filmu.
Eftir þessa heimsókn förum við að Charvak vatni þar sem þeim sem það vilja býðst að kaupa sér bátsferð um vatnið.
Í lok dags ferðumst við aftur til höfuðborgarinnar Tashkent þar sem við gistum á Ramada Tashkent.
Dagur 7 | 9. September
Áfangastaðir: Almaty, Kasakstan
Dagurinn hefst með morgunverði á hótelinu áður en ferðalag dagsins tekur okkur með flugi til borgarinnar Almaty í Kasakstan þar sem við förum á hótelið okkar, Ramada Almaty.
Dagur 8 | 10. September
Áfangastaðir: Almaty, Kasakstan | Medeu Valley, Kasakstan
Dagurinn hefst með morgunverði á hótelinu. Við förum í skoðunarferð um Almaty og sjáum helstu kennileiti borgarinnar eins og Panfilovets' Park sem er nefndur í höfuð 28 hermanna sem tilheyrðu herdeild hershöfðingjans Ivan Panfilov - hetjudáðir þessara hermanna og deildar urðu til þess að hægja nóg á sókn þýska hersins að hægt var að styrkja varnir Moskvu. Við heimsækjum einnig Zenkov Cathedral sem er í fyrrnefndum garði og er stórmerkileg sökum þess að hún var byggð án þess að notaðir væru naglar í smíði hennar, að auki er hún talin önnur hæsta kirkja heimsins sem er byggð úr viði.
Memorial of Glory er í sama garði og þar eru mörg minnismerki og minnisvarðar til heiðurs þessum hetjum. Við opnun árið 1975 var tendraður logi nefndur The Eternal Flame - árlega á deginum þegar þessar hetjur unnu þennan sigur er staðinn heiðursvörður um logann og hefð skapast fyrir því að ungmenni borgarinnar heimsæki hann.
Við heimsækjum síðan Medeu dalinn þar sem við skoðum samnefnt skautasvell í 1.691 metra hæð. Stærð svellsins er slík að haldnar eru keppnir á listskautum og í íshokki þar.
Dagurinn endar með heimsókn til Kök Bazaar eða The Green Bazaar markaðsins sem hefur verið mikilvæg miðstöð verslunar frá upphafi hans, árið 1875. Upphaflega var hann aðallega setinn af gestkomandi farandsölumönnum og kaupmönnum en í dag er hann einn vinsælasta aðdráttarafl ferðamanna í borginni líkt og Rahat Chocolate Market sem við munum einnig heimsækja.
Við endum daginn á hótelinu okkar, Hotel Ramada Almaty.
Dagur 9 | 11. September
Áfangastaðir: Ethno-village, Kasakstan | Kok-Tobe, Kasakstan | Almaty, Kasakstan
Dagurinn hefst með morgunverði á hótelinu áður en haldið er í spennandi ferðalag til þorps sem er í raun byggðasafn þar sem við lærum um líf og sögu lands og hirðingjamenningarinnar sem er ein af stoðum menningararfleiðar þeirra. Íbúar landsins í dag heiðra forfeður sína, sögu þeirra og hefðir meðal annars með sýningum eins og þessu þorpi.
Grunngildi þjóðarinnar eru meðal annars gestrisni og það er nánast skylda þeirra að taka vel á móti gestum. Í þorpinu fáum við leiðsögn um svæðið, kynningu á tjöldum hirðingja, hestasýningu, lærum um leiki þeirra og njótum þjóðlegs hádegisverðar.
Við endum daginn á að heimsækja hlíðar Kok-Tobe fjallsins og sjáum þar hæsta sjónvarps- eða útsendingarturn heimsins.
Við endum daginn á hótelinu okkar, Hotel Ramada Almaty.
Dagur 10 | 12. September
Áfangastaðir: Kolsay, Kasakstan | Kaiyndy, Kasakstan | Almaty, Kasakstan
Dagurinn hefst með morgunverði á hótelinu. Fyrsti áfangastaður dagsins er stöðuvatnið Kolsay nærri Almaty - oft talað um það sem blátt hálsmen Tian Shan fjallanna. Fegurð vatnsins er slík að nafnið er svo sannarlega verðskuldað.
Næsti áfangastaður okkar er annað stöðuvatn, Kaiyndy, sem við finnum í fjöllunum í um 2.000 metra hæð yfir sjávarmáli. Vatnið er um 400 metrar að lengd og nær mest 30 metra dýpi, vatn leyndardóma segja margir heimamenn. Við njótum óviðjafnanlegs útsýnis yfir vatnið, nærliggjandi Saty gljúfrin, Chilik ána og boli trjáa sem liggja niður í dýpi vatnsins.
Dagurinn er tileinkaður ótrúlegri fegurð náttúrunnar sem einkennir Kazakhstan.
Við endum daginn á hótelinu okkar, Hotel Ramada Almaty.
Dagur 11 | 13. September
Áfangastaðir: Alma-Arasan, Kasakstan | Almaty, Kasakstan
Dagurinn hefst með morgunverði á hótelinu áður en við förum í ævintýralega ferð þar sem við sjáum fjallagljúfrið Alma-Arasan og skoðum dýraverndunarsvæði sem hýsir tegund fálka sem eru í útrýmingarhættu, Sunkar. Þessi starfssemi er sú eina sinnar tegundar í öllu Kazakhstan og hefur frá upphafi komið á legg rétt rúmlega þúsund fuglum, af þeim hefur 260 verið slept út í náttúruna til að styrkja stofninn. Í heimsókn okkar fáum við að sjá þessi tilkomumiklu dýr, læra um þau og venjur þeirra, líffræði og sjáum síðan sýningu þar sem sérhæfðir starfsmenn láta fálkana leika listir sínar fyrir okkur meðan þeir fræða okkur um sögu fálkatemjara.
Við endum daginn á hótelinu okkar, Hotel Ramada Almaty.
Dagur 12 | 14. September
Áfangastaðir: Charyn, Kasakstan | Almaty, Kasakstan
Að loknum morgunverði keyrum við til Charyn Canyon sem er gil í Kasakstan, sannkölluð náttúruperla og er talið með stórbrotnari kennileitum landsins. Gilið er um ~154 kílómetra langt og liggur ein helsta á landsins, Charyn, um gilið sem er sjálft um 300 metra hátt þar sem hæst er. Ferðalangar lýsa því sem fyrir augu ber jafnan á þann hátt að útsýnið sé einstakt - í orðsins fyllstu merkingu.
Þekktasti hluti gilsins er nefndur The Valley of Castles eða gil kastalanna því það má hæglega líkja berginu þar við kastala frá miðöldum.
Við endum daginn á hótelinu okkar, Hotel Ramada Almaty.
Dagur 13 | 15. September
Áfangastaðir: Bishkek, Kirgistan
Morgunverður á hóteli. Við leggjum af stað til höfuðborgar Kirgistan, Bishkek, með stuttu stoppi á landamærum þess og Kasakstan. Þegar komið er til Bishkek förum við í skoðunarferð um borgina og munum sjá og/eða heimsækja helstu kennileiti hennar.
Meðal þess sem við munum sjá þar er Toktogul Satylganov Kyrgyz National Philharmonic, híbýli sinfoníusveitar landsins. Byggingin sjálf er óður til arkitektúrsins sem einkennir land og þjóð með tilkomumiklum innviðum og ytra útliti. Einnig munum við sjá The Statue of Manas styttuna sem var reist til heiðurs samnefndri hetju úr einni mikilvægustu þjóðsögu Kirgistan - The Epic of Manas. Styttan sem er um 20 metra há er af honum Manas þar sem hann situr á hestbaki, þjóðsagan sjálf er talin vera ein elsta sinnar tegundar í heiminum.
Victory Square eða Sigurtorgið var reist til minningar um sigur Sovétríkjanna gegn Nasistum í seinni heimsstyrjöldinni og er heimili The Eternal Flame minnismerkisins, hins eilífa loga.
Oak Park, lystigarður sem einkennist af fallegum eikartrjám, er vinsæll meðal bæði heimamanna og ferðalanga sem vilja eiga notalega stund umkringt náttúrunni - innan borgarmarka. Ala Too Square torgið er annað vinælt kennileiti borgarinnar, þekkt fyrir mikinn fjölda fallegra gosbrunna, lifandi andrúmslofts og daglega fara fram þar varðaskipti í takti við það sem finna má við Buckingham höll í London.
Við endum daginn með heimsókn til Osh Bazaar markaðsins sem er þekktur fyrir austrænt útlit og stemningu, honum er gjarnan lýst á þann hátt að hann sé sannkölluð birtingarmynd mið-asískrar verslunarmenningar. Hér er að finna spennandi og fjölbreytt úrval af allskonar varningi, framandi matvöru og handverki - svo eitthvað sé nefnt.
Við endum daginn á hóteli okkar, Ramada by Windham Bishkek Centre, þar sem við gistum yfir nótt.
Dagur 14 | 16. September
Áfangastaðir: Ala-Archa National Park, Kirgistan | Alamedin Canyon, Kirgistan | Bishkek, Kirgistan
Eftir að hafa borðað morgunverð á hótelinu förum við áleiðis til Ala-Archa National Park þjóðgarðsins sem er í um 30 kílómetra fjarlægð frá Bishkek. Garðurinn er ansi stór eða um 20.000 hektarar og er heimkynni fjölbreytts landslags, tilkomumikilla fjalla, áa og skóga sem einkennast af furutrjám. Nafn garðsins þýðist sem „flekkótt einiber“ og á að endurspegla fjölbreytileika trjáa garðins, bði barrs og furu.
Garðurinn er einnig heimkynni hinna ýmsu dýrategunda eins og til dæmis hinna sjaldgæfu snjóhlébarða sem er einskonar þjóðartákn Kirgistan og fuglategundarinnar luscinia svecica, jafnan kallaður fugl hamingjunnar, sem býr í klettabjörgum garðsins.
Næst heimsækjum við Alamedin Gorge gljúfrið sem nær hæst 1.800-2.000 metra hæð yfir sjávarmáli. Frá fjallstindum eins og Aitmatov Peak eða Kyrgyzstan Peak býðst ferðalöngum vægast sagt magnað útsýni yfir þessar náttúruperlur landsins. Gljúfrið sjálft er þakið fallegum fossum, birkilundum og gróskumiklum engjum sem hestar og sauðfé ganga um frjáls yfir sumartímann. Auk hinna fjölmörgu dýrategunda sem eiga heima á svæðinu er það einnig þekkt fyrir fjölbreytta flóru plöntutegunda sem eru notaðar í allskonar te og eru taldar hafa heilandi eiginleika. Nálægar hveralaugar er einmitt einnig taldar hafa heilandi áhrif og eru eftirsóknarverður áningarstaður fyrir ferðamenn.
Við endum daginn í Bishkek á hóteli okkar, Ramada by Windham Bishkek Centre, þar sem við gistum yfir nótt.
Dagur 15 | 17. September
Áfangastaðir: Tashkent, Úsbekistan
Ferðadagur. Eftir að við höfum fengið okkur morgunverð og skráð okkur út af hóteli okkar leggjum við að stað aftur til Tashkent í Úsbekistan með flugi frá Bishkek.
Við verðum sótt á flugvöllinn í Tashkent og keyrð á hótelið okkar þar, Ramada Tashkent, þar sem við gistum yfir nótt.
Dagur 16 | 18. September
Áfangastaðir: Riga, Lettland | Keflavík, Ísland
Heimfarardagur. Við eigum flug til Riga í Lettlandi klukkan 08:15 og áætluð lending þar klukkan 12:00 á staðartíma.
Fararstjóri mun taka hópinn með sér í skoðunarferð um borgina og síðan gefst frjáls tími þar til hópurinn verður sóttur og keyrður á flugvöllinn í Riga. Áætlaður brottfarartími heimflugsins er klukkan 23:00 og lendum við heima á Íslandi klukkan 23:55 á staðartíma.