Framandi heimur mið-Asíu, glæsilegar borgir með ríka sögu, framandi menningarheimur og stórbrotin náttúra. Við heimsækjum frægar moskur og tilkomumiklar hallir, framandi markaði með spennandi vörur, einstakar náttúruperlur og fáum einstaka innsýn í líf hirðingjana sem kalla þessi lönd heimkynni sín.
Verð
- Verð per einstakling í tveggja manna herbergi 748.400kr.
- Verð fyrir einstaklingsherbergi 851.400kr.
Hvað er innifalið?
- Flug með sköttum og tösku.
- Flug milli Úsbekistan, Kasakstan og Kirgistan.
- Hótel með fullu fæði í Úsbekistan.
- Hótel með fullu fæði í Kasakstan.
- Hótel með fullu fæði í Kirgistan.
- Öll keyrsla á milli staða samkvæmt ferðaáætlun.
- Allar skoðunarferðir í ferðaáætlun og aðgangur þar sem við á.
- Miðar í lestarferðir í ferðaáætlun.
- 1L vatnsflaska per dag.
- Íslenskur fararstjóri frá Íslandi og innlendur enskumælandi fararstjóri úti.
Fararstjóri
Vilmundur Hansen fararstjóri er garðyrkju- og grasafræðingur auk þess sem hann hefur stundað nám í mann- og trúarbragðafræði. Vilmundur er afar reyndur fararstjóri sem hefur ferðast víðsvegar um heiminn bæði á eigin vegum og sem fararstjóri fyrir hinar ýmsu ferðaskrifstofur.
Vilmundur er mörgum kunnugur fyrir Facebook síðuna Ræktaðu Garðinn Þinn sem hann heldur úti þar sem hann fjallar um allt milli himins og jarðar er tengist garðyrkju.