Trans- Atlantic og Gönguferðir Grétu bjóða uppá einstaka ferð til töfraeyjunnar Sri Lanka sem á engan sinn líka! Hér kemur saman gullfalleg náttúra, heillandi menning og framandi dýralíf sem gera þessa spennandi gönguferð að einstakri upplifun sem ekki má missa af.
Ferðatímabil er 30. Nóvember til 12. Desember 2026
Takmarkaður fjöldi sæta í boði !
Ferðaáætlun
Dagur 1. og 2. - 30. Nov. og 1 des. – 2026: Keflavik - London – Negombo
Flogið frá Keflavik til London Heathrow kl. 7.30 og lent kl. 10.50.
Um kvöldið er svo haldið áfram með Sri Lankan Airlines til Colombo og lent þar kl. 20.40 að staðartíma daginn eftir. Keyrum þvi næst til Negombo, um 20 mínútna akstur. Kvöldverður og gisting á Jetwing Sea Hotel eða sambærilegu hóteli.
Dagur 3. – 1. Des. 2026: Negombo – Sigiriya – Dambulla
Eftir morgunverð á hótelinu er ekið til Sigiriya (um 3½ klst. ) Seinni partinn göngum við eftir stíg uppá klettinn Sigiriya. Gangan i heildina tekur um 2–3 klst. Sigiriya er á heimsminjaskrá UNESCO og talið eitt magnaðasta náttúrufyrirbæri landsins. Það er líka kallað Ljónakletturinn vegna styttu af ljóni sem stóð við innganginn að höll sem var áður var staðsett á toppnum, í um 200 metra hæð. Þar má enn á vesturhliðinni sjá eina þekktustu fornmyndina á Sri Lanka, 21 freskur af dömum í skærum og fallegum litum.
Kvöldverður og gisting á Amaya Lake Dambulla eða sambærilegu hóteli.
Dagur 4. – 2. Des. 2026: Dambulla – Pidurangala – Dambulla
Byrjum á Jóga á hótelinu með kennara . Eftir morgunverð er ekið til Pidurangala um 30 mínútur. I dag byrjum við gönguna við Pidurangala Sigiri Rajamaha Viharaya. Við göngum eftir eftir vel merktum slóða í gegnum frumskóginn, síðan taka við klettar . Síðasti hlutinn er aðeins meira krefjandi. Við endum svo upp á sjálfum Pidurangala klettinum, þaðan sem er stórkostlegt útsýni, við höldum svo tilbaka.
Kvöldverður og gisting á Amaya Lake Dambulla eða sambærilegu hóteli.
Dagur 5. – 3. Des. 2026: Dambulla – Kandy
Eftir morgunverð er ekið til Kandy sem tekur um 2 klst. Heimsókn í svo kallað Tannahof eða Temple of the Tooth Relic. Þar er að þvi að talið er tönn Búdda geymd og er þetta einna helgasti staður búddista í heiminum.
Kvöldverður og gisting á Amaya Hills eða sambærilegu hóteli.
Dagur 6. – 4. Des. 2026: Kandy – Nuwara Eliya
Eftir morgunverð er ekið til bæjarins Nuwara Eliya (um 2 klst. akstur) , sem staðsettur er á miðhálendi Sri Lanka. Bærinn er oft kallaður „ litla England „ vegna milds loftslags. Nuwara Eliya er í um 2.000 m. hæð. Árið 1826 komu þangað fyrir tilviljun, enskir hermenn sem voru i veiðiferð. Enski landkönnuðurinn og ævintýrmaðurinn Sir Samuel Baker stofnaði Nuwara Eliya sem heilsubæ árið 1846 fyrir enska emættismenn, hann settist þar svo sjálfur að.
Dagur 7. – 5. Des. 2026: Nuwara Eliya – Ella
Eftir morgunmat er haldið til þjóðgarðsins Horton Plains , við göngum þar að útsýnisstaðnum World’s End, sem er um 3ja tíma gönguferð og er í 1300 m. hæð. Horton Plains er stórt, fallegt hálendissvæði í miðju fjalllendi Sri Lanka. Til að njóta svæðisins sem best leggjum við af stað snemma eða um kl . 5.30 frá Nuwara Eliya, Kvöldverður og gisting á The Pinnacle Ella (Deluxe) eða sambærilegu hóteli.
Dagur 8. – 6. Des. 2026: Ella – Yala
Eftir morgunverð er ekið að Nine Arch Bridge. Nine Arch Bridge, eða „brúin á himnum“, er brú frá nýlendutímanum og eitt þekktasta járnbrautarmannvirki Sri Lanka. Því næst er stefnan tekin á Yala þjóðgarðinn (um 2½ klst. akstur). Þar tekur við Safari ferð um þennann ótrúlega spennandi þjóðgarð. Yala þjóðgarðurinn er vinsælasta verndarsvæði dýra á Sri Lanka, þar má finna griðarlega fjölbreytt dýralíf. Í Yala eru margar tegundir fugla, spendýra og skriðdýra, sérstaklega er mikið af filum og hlébörðum. Talið er að um 70 hlébarðar búi í garðinum og þar sem þeir eru efstir i fæðukeðjunni , er ekkert dýr sem þeir óttast. Þeir eru þvi ekki eins hræddir og hlébarðarnir í Afríku, þar sem ljón ráða ríkjum. Þess vegna eru líkurnar meiri á að sjá hlébarða í Yala en á nokkrum öðrum stað í heiminum. Kvöldverður og gisting á Jetwing Yala eða sambærilegu hóteli.
Dagur 9. – 7. Des. 2026: Yala
Morgunverður á hóteli og dagurinn frjáls. Kvöldverður og gisting á Jetwing Yala eða sambærilegu hóteli.
Dagur 10. – 8. Des. 2026: Yala – Mirissa (Weligama)
Eftir morgunverð er ekið til Weligama (um 2½ klst. akstur). Það sem eftir lifir dags er frjáls tími. Kvöldverður og gisting á Weligama Bay Marriott Resort & Spa (Superior Ocean) eða sambærilegu hóteli.
Dagur 11 – 9 Des. 2026: Weligama
Morgunverður á hóteli, þessi dagur er frjáls.
Kvöldverður og gisting á Weligama Bay Marriott Resort & Spa (Superior Ocean) eða sambærilegu hóteli.
Dagur 12 – 10 Des. 2026: Weligama – Colombo
Eftir morgunverð er ekið til Galle (um 1 klst. akstur). Heimsókn í Galle‐virkið, sem Portúgalar byggðu á 16. Öld. Virkið er staðsett á suðvesturströnd Sri Lanka. Það var frekar einföld bygging i upphafi svo tóku Hollendingar við og stækkuðu og styrktu það mikið á 17. öld. Í dag er það eitt mikilvægasta sögulega mannvirki svæðisins og sýnir skýrt áhrif Evrópu í Suðaustur‐Asíu frá 16. til 19. aldar. Því næst er ekið til Colombo (um 1½ klst. akstur). Kvöldverður og gisting á The Kingsbury Colombo eða sambærilegu hóteli.
Dagur 13 – 11. Des. 2026: Colombo
Eftir morgunverð er farið á jógastöð í Colombo, þar förum við í morgunjóga með heimafólki og jógakennara (um 1½ klst.). Kvöldverður og gisting á The Kingsbury Colombo eða sambærilegu hóteli.
Dagur 14 – 12. Des. 2026: Colombo – Flugvöllur
Flogið kl. 02.20 til London Heathrow og lent kl . 8.40 . Við eigum svo flug til Islands kl 20.35 og lendum kl 23.55
Verð
- Verð per einstakling í tveggja manna herbergi 760.200 kr.
- Verð fyrir eins manns herbergi 908.700 kr.
- Visa, við aðstoðum ef með þarf en ódýrt er að sækja um það í gegnum netið.
Hvað er innifalið?
- Flug með sköttum og tösku
- Íslenskur fararstjóri / göngufararstjóri
- Innlendur enskumælandi fararstjóri allan tímann í Sri Lanka
- Öll gisting með morgunmat
- Hálft fæði | Morgunmatur og kvöldmatur
- Allur flutningur | Allar ferðir
- Vatn í ferðum
- Aðgangur þar sem við á
- Einn tími með innlendum kennara í yoga stöð í Colombo
- Kennsla / Leiðbeiningar í ljósmyndun
Fararstjóri
Gréta S. Guðjónsdóttir er lærður og starfandi leiðsögumaður og ljósmyndari. Hún hefur verið að leiðsegja síðan hún flutti heim til Íslands árið 1996, frá Hollandi. Fyrstu árin eingöngu með prívat ljósmyndaferðir en eftir að hafa náð sér í réttindi Leiðsögumanns árið 2011, um allt Ísland og allan heim, t.d. Kúbu, Marrakesh og Grænland. Hún hefur lengst af unnið hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum, Ferðafélagi Íslands, Atlantik, Úrval Útsýn, og nú síðast með Gönguferðir Grétu. Gréta er með WFR (skyndihjálp í óbyggðum) og meiraprófið.