Trans- Atlantic í samstarfi við hinn margreynda og eftirsótta fararstjóra Hinrik Ólafsson bjóða uppá einstaka skíðaferð í Kákasusfjöllum Georgíu, 22-31 janúar 2027
Takmarkaður fjöldi sæta í boði!
Gudauri liggur hátt ofan trjálínu sem tryggir einstakt snjóöryggi,
- Hæð yfir sjávarmáli: Neðsta skíðasvæðið og þorpið byrjar í 2.000 metra hæð.
- Tindarnir: Nútímalegar lyftur flytja þig upp á Kudebi-tindinn í 3.007 metra hæð og alla leið upp á hinn tignarlega Sadzele-tind í 3.307 metra hæð yfir sjávarmáli.
- Lóðrétt fall: Allt að 1.307 metra samfellt lóðrétt fall frá hæsta tindi og niður í dalbotninn.
- Skíðasvæðið: Svæðið státar af yfir 80 kílómetrum af brautum. Skiptingin hentar öllum getustigum: 30% bláar brautir (byrjendur), 40% rauðar (lengra komnir) og 30% svartar (sérfræðingar).
- Lengsta brekkan: Býður upp á 7 kílómetra samfellda og krefjandi skíðaiðkun í einni lotu.
- Lyftukerfi í fremstu röð: Alls 14 til 17 lyftur, þar á meðal lokaðir 10-manna kláfar frá franska POMA og hraðskreiðar stólalyftum frá austurríska Doppelmayr. Kerfið annar allt að 11.000 manns á klukkustund, þannig að raðir eru nánast óþekkt fyrirbæri
Það sem gerir Gudauri einstakt á heimsvísu er einstaklega góður snjór fyrir skiðamenn. Vegna þess að svæðið er algjörlega ofan trjálínu og loftslagið inn til landsins er þurrt, helst púðursnjórinn.
Skíðaðu hvar sem er. Um leið og þú stígur út úr lyftunni getur þú farið út fyrir brautina og beygt beint út í ótroðin snjóinn.
Ultimate Heli-Ski: Flogið upp í 4.200 metra hæð
Fyrir þá sem leita að hinu fullkomna frelsi og adrenalíni er Gudauri einn besti og hagkvæmasti áfangastaður heims fyrir Heli-skiing.
Þegar hefðbundna lyftukerfið stoppar í 3.307 metrum, taka öflugar þyrlur við. Þær fljúga með þig inn í óskert og verndað fjalllendi í kringum hinn tignarlega eldgosatind Mt. Kazbegi (5.054 metrar).
Þyrlurnar lenda með hópinn þinn í allt að 4.200 metra hæð yfir sjávarmáli. Þaðan bíður þín djúpur púðursnjórinn, með 800 til 1.500 metra lóðréttu falli í hverri einustu ferð. Hér mögulega skilurðu eftir slóð þar sem enginn annar hefur komið áður.
Fimm ferðir kosta 1300 dollara og eru bókaðar á staðnum.
Gisting í fremstu röð: Gudauri INN (eða sambærilegt)
Eftir ævintýralegan dag tekur við slökun. Í ferðunum okkar gistir þú á hinu glæsilega Gudauri INN (eða sambærilegu 4-stjörnu hóteli). Hótelið er staðsett í 2.200 metra hæð yfir sjávarmáli og býður upp á allt það besta sem skíðafólk vantar:
Stórbrotið útsýni: Öll herbergin eru björt og nútímaleg, mörg hver með svölum sem snúa út að tignarlegum fjallstindunum og dalnum.
Heilsulind og slökun: Á hótelinu er að finna glæsilegra innilaug og gufubað – fullkomið til að endurnæra lúna vöðva eftir skíðadaginn.
Georgískur matur og After-Ski: Á veitingastað hótelsins færðu ýmsa rétti auk þess sem barinn býður upp á frábær staðbundin vín úr elstu vínmenningu veraldar.
Ferðaáætlun
1. Dagur - 22 janúar : Kaupmannahöfn - Riga
Flogið til Kaupmannahafnar kl 7.30, lendum 11.45 skipt um vél og lent i Riga kl 16.30, gistum þar eina nótt. Hotel Tallink
2. Dagur - 23 janúar: Riga - Tblisi
Fljúgum til Tbilisi kl 12.05 og lendum 18.20
Fararstjóri tekur á móti okkur og fer með okkur á hótel í Tíblísí.
Innritun og kvöldverður á veitingastað.
3. Dagur - 24 Janúar : Tblisi – Gudauri
Eftir morgunmat er haldið frá Tíblísí til Gudauri, helstu skíðadvalarstaðar Georgíu í Kákasusfjöllum.
Skíðadagur og skoðun á aðstöðu svæðisins. Kvöldverður á hótelinu. Gisting í Gudauri.
4.-8. dagur - 25-29 janúar : Skíði í Gudauri
Fimm fullir dagar á skíðum í Gudaurí, umkringdir tignarlegum fjallstindum.
Tími nýttur í skíðaiðkun á brekkum svæðisins. Kvöldverður og gisting á hóteli í Gudauri alla dagana.
9. dagur - 30 janúar: Gudauri – Tblisi
Morgunverður og síðasti skíðadagurinn í Gudauri, skiðum eitthvað fram yfir hádegi. Seinni part Keyrt til Tblisi þar sem við gistum, frjáls tími.
10. dagur - 31 janúar: Heimferð, Gudauri - Keflavik
Morgunverður, keyrum til Tblisi flugvallar. Flogið til Riga kl.8.30, siðan til Kaupmannahafnar og þaðan til Íslands, lendum þar kl 19.30.
Verð
- Verð per mann í 2ja manna herbergi er 497.600 kr
- Verð fyrir einstaklingsherbergi 542.500 kr.
Hvað er innifalið?
- Flug með tösku og skíðum
- Enskumælandi skíðaleiðsögumaður í Gudauri tvo fyrstu dagana
- Enskumælandi leiðsögumaður í borgarskoðun í Tblísí
- Islenskur farastjóri
- Allur akstur í Georgiu or Riga
- Skíðapassi þann tima sem skíðað er
- 1 nótt í Riga
- 2 nætur í Tíblísí
- 6 nætur í Gudauri
- 6 kvöldverðir á hóteli í Gudauri
- 1 kvöldverður í Tblisi við komu
- Hotel með mogunmat
- Farastjóri: Hinrik Ólafsson
|
Hótel |
Tbilisi |
Gudauri |
|
**** |
Brim hotel (eða svipað) |
Gudauri INN (eða svipað) |
Fararstjóri
Hinrik Ólafsson er reynslumikill, líflegur og orkumikill fararstjóri sem tryggir að skíðaferðin verði ógleymanleg, bæði í brekkunum og utan þeirra. Með brennandi áhuga á skíðaíþróttinni, næmt auga fyrir öllum smáatriðum sér hann til þess að hópurinn fái sem mest út úr hverjum einasta degi á snjónum.
-
Reynsla og þekking: Margra ára reynsla af stjórnun hópa í fjallaferðum.
-
Öryggi og vellíðan í fyrsta sæti: Passar vel upp á alla þátttakendur, hvort sem þeir eru vanir skíðamenn eða að stíga sín fyrstu skref. Öryggi, skipulag og góð þjónusta eru ávallt í fyrirrúmi.
-
Stemningssmiður og félagsskapur: Þekktur fyrir smitandi orku, góðan húmor og hæfileikann til að þjappa hópnum saman. Hann heldur uppi frábærri stemningu allt frá fyrstu ferð á skíði og yfir í après-ski dagsins.
Með Hinrik sem fararstjóra getur þú einbeitt þér alveg að því að njóta skíðagleðinnar og snjósins í fullvissu um að allt skipulag og utumhald sé í öruggum höndum.