
Stórskemmtileg og spennandi gönguferð um Kákasusfjöll Georgíu.
Gullfallegt land sem skartar mörgum tignarlegum fjöllum. Mikil og fjölbreytt náttúrufegurð einkennir landið sem býr yfir ríkri og spennandi menningarsögu.
Í þessari ferð komum við til með að njóta náttúru og menningar þessa tilkomumikla lands og gestrisnu þjóðar.
17. sept. 2026 –/– Dagur 1, kl. 00:45 eftir miðnætti.
Keflavík til Tbilisi í Georgíu
Ferðlagið hefst með flugi frá Keflavíkurflugvelli til Riga í Lettlandi klukkan 00:45 eftir miðnætti þann 17. sept. og lendum þar klukkan 07:20. Við verðum sótt á flugvöll og keyrð á Tallink Hotel Riga, frjáls tími þar til við fljúgum áleiðis til Tbilisi síðar um kvöldið.
Riga er meira en 800 ára gömul og afskaplega falleg borg og margt spennandi að sjá hér, til dæmis er eitt stærsta samansafn af Art Noveau og Jugend byggingalist. Gamli bærinn í Riga er á heimsminjaskrá UNESCO og víða má þar finna falleg torg sem hýsa bjórgarða, veitingastaði og kaffihús og því tilvalið að setjast niður og gera vel við sig í mat og drykk.
Flugið áfram til Tbilisi í Georgíu frá Riga er klukkan 23:50 og er áætluð lending í Tbilisi klukkan 05:15 þar sem við verðum sótt og keyrð á Hotel Astoria eða sambærilegt hótel.
18. sept. 2026 –/– Dagur 2, kl. 05:15 að morgni.
Skoðunarferð um Tbilisi og ekið til Kazbegi (M-H-K)
Við hittum bílstjórann okkar á flugvellinum í Tbilisi og hann keyrir okkur upp á hótel þar sem við náum smá hvíldartíma fyrir ferðalagið framundan.
Að loknum hádegisverði um kl. 14:00 hefjum við skoðunarferð um Tbilisi. Við byrjum á að ganga um gamla bæinn sem stofnaður var af Vakhtang Gorgasali, konungi Kartli (Íberíu). Borgin var síðar gerð að höfuðborg eða á 6. öld.
Í ferðinni skoðum við nokkur helstu kennileiti og þar á meðal Metekhi-kirkjuna sem stendur á kletti með fallegu útsýni yfir Mtkvari-ána og einnig hin frægu brennisteinsböð sem setja svip sinn á borgina. Þá tökum við kláf upp í Narikala-virkið sem er aldagamalt tákn um varnir og sögu borgarinnar og þar opnast stórkostlegt útsýni yfir Tbilisi.
Um kl. 17:00 leggjum við af stað akandi til borgarinnar Kazbegi. Á leiðinni snæðum við kvöldverð áður en komið er á áfangastað en gist verður á hóteli í Kazbegi.
19. sept. 2026 –/– Dagur 3.
Kazbegi – Gudauri – Ananuri – Kutaisi (360 km) (M-H-K)

Við hefjum daginn á göngu upp að Gergeti Trinity Church en þaðan gefst einstakt tækifæri til að njóta útsýnis yfir fjallið Kazbek en það er sofandi eldfjall og eitt af helstu fjöllum Kákasusfjallgarðsins.
Að lokinni göngunni snæðum við hádegis-verð í Stepantsminda áður en ekið er áfram í um klukkustund til Gudauri þar sem við heimsækjum eina af földu perlum þessa hluta Georgíu og hefjum gönguvikuna á svæði sem er þekkt fyrir kyrrð, stórbrotna náttúru og að vera utan alfaraleiða þar sem ferðamenn eru sjaldséðir.
Hér leynist afskekkt gil við rætur Gudauri-fjalla á mörkum Kákasusfjallanna. Þá kíkjum við einnig á Gudauri skíðasvæðið sem er það stærsta í Georgíu. Þessu næst tekur við þriggja tíma akstur til Kutaisi en á leiðinni skoðum við meðal annars Ananuri-kastala-bygginguna. Við snæðum svo kvöldverð við komuna til Kutaisi og gistum á hóteli í borginni.
•Erfiðleikastig göngu: Létt
•Gönguvegalengd: Um 7 km
•Göngutími: Um 5 klst.
20. sept. 2026 –/– Dagur 4.
Kutaisi – Chalaadi Glacier – Mestia (260 km) (M-H-K)

Við skellum í okkur morgunverði eftir góðan nætursvefn á hótelinu áður en haldið er af stað til Svaneti og eftir um tveggja klukkustunda akstur frá Kutaisi komum við að Enguri-stíflunni, einu af stærstu mannvirkjum Georgíu.
Að heimsókn lokinni opnast leiðin inn í hinn töfrandi heim Kákasusfjallanna þar sem við ökum um stórbrotið fjalllendi Svaneti-svæðisins með nokkrum viðkomustöðum á leiðinni.
Loks erum við komin á áfangastaðinn okkar, Mestia og förum þá í létta upphitunargöngu að Chalaadi-jökli þar sem við njótum einstakrar náttúrufegurðar svæðisins.
•Erfiðleikastig göngu: Létt
•Gönguvegalengd: Um 17 km
•Göngutími: Um 5 klst.
21. sept. 2026 –/– Dagur 5.
Mestia – Lake Koruldi – Mulakhi (10 til 12 km) (M-Nesti-K)

Að loknum morgunverði hefjum við ferðina með 4x4 jeppum upp að Koruldi-vötnunum. Á leiðinni njótum við stórbrotins útsýnis og komum að svonefndum Krossi í um 705 m hæð yfir Mestia (2.170 m.y.s.). Þaðan höldum við áfram í átt að vötnunum þar sem opnast magnað útsýni yfir tignarlegan Stóra-Kákasusfjallgarðinn (Ushba, Tetnuldi, Laila o.fl.) sem heillar okkur með sinni miklu fegurð. Að lokum snúum við svo aftur til Mestia.
Við útjaðar Mestia hefst svo aðal ganga ferðarinnar. Landslagið er ótrúlega fallegt út alla dagleiðina… en við göngum úr 1400 m hæð upp í 1900 m. Um er að ræða 5 klst. göngu til þorpsins Jabeshi í Mulakhi-héraði, þar sem við snæðum kvöldverð og eigum náttstað.
•Erfiðleikastig göngu: Miðlungs til erfið
•Gönguvegalengd: 10 til 12 km
•Göngutími: 5 til 6 klst.
22. sept. 2026 –/– Dagur 6.
Mulakhi – Adishi (13 km) (M-Nesti-K)

Við hefjum gönguna eftir morgunverð og fylgjum skógarstíg sem liggur upp í Ughviri-skarð (2.480 m). Þaðan opnast enn einu sinni stórbrotið útsýni yfir Kákasusfjallgarðinn.
Þaðan liggur leiðin áfram um þéttan skóg þar sem kaldar lindir og lækir renna víða um. Við göngum yfir víðáttumikla akra og af hæsta punkti blasir við okkur þorpið Adishi.
Í þorpinu búa nú aðeins sárafáar fjölskyldur en aldargamlir turnar standa enn uppréttir og bera vitni um sögu svæðisins. Hér gefst einstakt tækifæri til að upplifa hefðbundið líferni þorpsbúa og fá ósvikna innsýn í menningu heimamanna.
Hér í Adishi eigum við herbergi á gistihúsi og snæðum langþráðan kvöldverð.
•Erfiðleikastig göngu: Auðveld til miðlungs
•Gönguvegalengd: Um 13 km
•Göngutími: Um 6 klst.
23. sept. 2026 –/– Dagur 7.
Adishi – Ifrari (17 km) (M-Nesti-K)

Dagurinn í dag er einn af hápunkt-um ferðarinnar. Við leggjum af stað snemma morguns að vanda og fylgjum eftir farvegi árinnar þar til við förum yfir hana á hestbaki. Eftir að komið er yfir ána tekur við greinileg gönguleið í átt að Ifrari, oft merkt með rauðum og hvítum merkjum. Fljótlega blasir við okkur Adishi-jökullinn, stórbrotin ísbreiða (4.800m), sem gnæfir yfir landslaginu. Umhverfið er einstakt; snævi þaktir tindar, grænar engjar og litrík blómabreiða. Á leiðinni er fjöldi útsýnisstaða sem kalla á myndatökur. Við höldum áfram upp í skarð sem er í um 2.730 metra hæð þar sem útsýnið er slíkt að manni finnst eins og hægt sé að snerta bæði fjallatoppana og skýin. Eftir að hafa gengið yfir skarðið liggur leiðin niður á við og framhjá litlum smalakofum áður en við komum að þorpinu Ifrari þar sem við gistum og snæðum kvöldverð.
•Erfiðleikastig göngu: Miðlungs
•Gönguvegalengd: Um 17 km
•Göngutími: Um 7 klst.
24. sept. 2026 –/– Dagur 8.
Ifrari – Ushguli (15 km) (M-Nesti-K)

Í dag göngum við síðasta legg leiðarinnar til þorpsins Ushguli (2.200 m) og er það einn af sérstæðustu viðkomustöðum ferðarinnar. Við göngum í gegnum eldri byggð og fylgjum skógarstíg sem leiðir okkur út á opnar engjar. Þaðan njótum við víðáttumikils útsýnis yfir snævi þakta tinda Mount Tetnuldi. Að lokum birtist Ushguli fyrir augum okkar, þorpið er á heimsminjaskrá UNESCO og er eitt hæsta þorp Evrópu þar sem er föst og samfelld búseta. Hér standa aldagamlir turnar andspænis hæsta fjalli Georgíu, Mount Shkhara (5.201 m). Ushguli er vissulega sannkallaður „must-see“ áfangastaður. Við dveljum hér eina nótt á gistihúsi og snæðum kvöldverð.
•Erfiðleikastig göngu: Miðlungs til Erfið
•Gönguvegalengd: Um 15 km
•Göngutími: Um 5 klst.
25. sept. 2026 – Dagur 9.
Ushguli – Kutaisi (300 km) (M-H-K)
Að afloknum morgunverði daginn eftir snúum við för okkar til baka með 4x4 jeppa beinustu leið aftur til Mestia. Á leiðinni stoppum við í Zugdidi og snæðum hádegisverð. Að því loknu ökum við áfram niður til Kutaisi, einnar elstu borga Evrópu.
Við heimsækjum Gelati-klaustrið, sem er á heimsminjaskrá UNESCO og telst eitt helsta meistaraverk gullaldar Georgíu á miðöldum – tímabils sem einkenndist af miklum framförum í vísindum, menntun og efnahagslífi. Klaustrið starfaði einnig sem akademía og var eitt mikilvægasta menningarsetur landsins á sínum tíma.
Við borðum kvöldverð á veitingastað í Kutaisi og gistum á hóteli í bænum.
26. sept. 2026 – Dagur 10.
Kutaisi – Tbilisi (240 km) (M-H-K)

Eftir góðan morgunverð leggjum við af stað í síðasta áfanga ökuferðarinnar til Tbilisi.
Á leiðinni heimsækjum við hellaborgina Uplistsikhe, fornan bæ sem grafinn er inn í klettana og á sér um 3.000 ára sögu. Þar fáum við innsýn í mikilvægt hlutverk svæðisins í sögu Georgíu. Við fáum hádegisverð á góðum veitingastað hér í Uplistsikhe.
Að því loknu heimsækjum við Svetitskhoveli-dómkirkjuna í hinum sögulega bæ Mtskheta, skammt frá Tbilisi. Dóm-kirkjan er eitt helsta meistaraverk miðalda í Georgíu og er á heims-minjaskrá UNESCO.
Að loknum skoðunar-ferðum höldum við nú sem leið liggur til Tbilisi þar sem okkur gefst tækifæri til að njóta hinna frægu georgísku brennisteinsbaða.
Að lokum snæðum við kvöldverð á veitingastað í borginni og gistum á hóteli.
27. sept. 2026 – Dagur 11. – Ferðalok
Tbilisi – Riga – Keflavík
Nú er þörf á að taka daginn snemma þar sem flugið okkar til Riga tekur á loft kl. 06:10 og verður okkur ekið út á flugvöll. Við lendum skv. áætlun kl. 09:35 og er því frjáls dagur í Riga þar til við fljúgum heim til Íslands kl. 23:00. Það er því um að gera að njóta dagsins og alls þess sem Riga hefur upp á að bjóða en við dveljum á Tallink Hotel Riga.
Riga hefur upp á mjög margt að bjóða
Tónlistarhátíðir, þjóðlagatónlist og nútíma danstónlist skipa stóran sess í Riga þar sem borgin býður upp á lifandi og spennandi næturlíf. Opin svæði eru víða með fallegum görðum og vel hefur tekist að samræma náttúruna og byggðina í kring án þess að missa sjarmann sem einkennir borgina.
Riga Central Market er einn stærsti markaður Evrópu og er staðsettur í gömlum flugskýlum fyrir loftskip. Hér má finna allt frá matvöru til fatnaðar.
Alberta Iela er ein mesta gersemi Riga, á þessari götu er að finna ótrúlegt magn af byggingum sem tilheyra Art Nouveau stílnum en mikilfenglegur íburður og styttur einkenna stílinn. Sumar bygginganna eru einnig söfn og því er hægt að skoða þær að innan.
Óperu og balletthöll Lettlands er staðsett í Riga og er húsnæðið sjálft afskaplega tilkomumikið. Húsið var byggt 1882 í neó-klassískum byggingarstíl og hefur hýst margar skærustu stjörnur þessara sviðslista, t.d. Mikhail Baryshnikov.
Riga Motor Museum hefur auk almennrar bifreiðasögu að geyma skemmtilegt safn bifreiða sem tilheyrðu ráðamönnum gömlu Sovétríkjanna.
Livu Aquapark sem býður m.a. upp á rennibrautir, sundlaugar, gufuböð og í garðinum má einnig að finna veitingastað og bar.