Azoreyjar – Göngu- og náttúruferð 13.–22. apríl 2027

Azoreyjar – Göngu- og náttúruferð 13.–22. apríl 2027

Trans- Atlantic í samstarfi við hinn margreynda og eftirsótta fararstjóra Hinrik Ólafsson bjóða uppá einstaka ferð til hinna stórbrotnu Azoreyja í miðju Atlantshafi! Eyjarnar eru þekktar fyrir stórbrotið landslag, gróskumikla náttúru, djúpa gíga, fossa, hverasvæði og falleg vötn sem gera þær að einum vinsælasta áfangastað Evrópu fyrir gönguferðir. Azoreyjar eru níu eldfjallaeyjar í miðju Atlantshafi, um 1.500 km vestur af Portúgal.

Azoreyjar – Göngu- og náttúruferð 13.–22. apríl 2027

Takmarkaður fjöldi sæta í boði !

Ferðaáætlun

 

Dagur 1 – 13. apríl

Komudagur – São Miguel (Ponta Delgada)

Flogið með Icelandair til Lissabon 8.30 lent 13.40, höldum svo áfram með til Sao Miguel með TAP air kl 17.05 og lendum þar kl 18.35

Akstur á hótel og innritun.

Gisting: Hotel Ponta Delgada *** https://hotelpdl.com/en eða sambærilegt hótel.

 

Dagur 2 – 14. apríl

Gönguferð um Sete Cidades

Vegalengd: 11,8 km
Erfiðleikastig: Miðlungs
Göngutími: Um 3 klukkustundir

Eftir morgunverð er haldið vestur um eyjuna São Miguel. Gengið verður eina þekktustu gönguleið Azoreyja, eftir brúnum hins stórbrotna eldfjallagígs Sete Cidades.

Á leiðinni njótum við stórfenglegs útsýnis yfir hið fræga Bláa vatn og Græna vatn. Þegar komið er niður í hið fallega þorp Sete Cidades er ekið að útsýnisstöðunum Vista do Rei og Boca do Inferno. Þaðan er haldið til Mosteiros og Ponta da Ferraria áður en snúið er aftur til Ponta Delgada.

 

Dagur 3 – 15. apríl 2027

Salto do Prego fossinn og Furnas

Vegalengd: 5,4 km
Erfiðleikastig: Miðlungs
Göngutími: Um 2½ klukkustund

Eftir morgunverð er ekið til Faial da Terra þar sem gönguferðin hefst.

Leiðin liggur um gróskumikinn frumskóg og hið endurbyggða þorp Sanguinho áður en komið er að hinum fallega Salto do Prego fossi, sem telst eitt af földu náttúruperlum São Miguel.

Þaðan er haldið til Furnas sem er heimsþekkt fyrir jarðhitasvæði sitt. Þar skoðum við gufuhveri, eldfjallavatnið og þorpið. Þeir sem vilja geta smakkað hinn fræga Cozido das Furnas, hefðbundinn rétt sem er eldaður í jarðhitanum (valkvætt).

Að lokum er haldið aftur á hótelið.

 

Dagur 4 – 16. apríl 2027

Lagoa do Fogo og Ribeira Grande

Í dag er frí frá göngu, við heimsækjum við Lagoa do Fogo, eitt fegursta og tilkomu mesta stöðuvatn í eldgíg á Azoreyjum.

Við stoppum á vinsælustu útsýnisstöðum svæðisins áður en haldið er til Ribeira Grande, einnar elstu bæjar São Miguel.

Síðar heimsækjum við Gorreana teplantekruna, elstu teframleiðslu Evrópu sem enn er starfandi. Þar fáum við innsýn í hefðbundna framleiðslu á tei og smökkum á tei heimamanna.

Að lokum er snúið aftur til Ponta Delgada.

 

Dagur 5 – 17. apríl

Frá São Miguel til Pico

Akstur á flugvöll og innanlandsflug til Pico.

Við komuna er ekið til Madalena þar sem við skoðum hið einstaka vínræktarlandslag Pico sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Þar hafa aldagamlir víngarðar verið verndaðir með svörtum hraunveggjum og framleiða hið þekkta Pico-vín.

Einnig heimsækjum við Vínsafnið áður en innritað er á hótel.

Gisting: Hotel Caravelas **** eða sambærilegt hótel. https://www.oceanohoteis.com/#caravelas

 

Dagur 6 – 18. apríl

Ganga á Pico-fjall

Vegalengd: Um 8 km (fram og til baka)
Erfiðleikastig: Erfitt
Göngutími: Um 7–9 klukkustundir

Snemma morguns leggjum við af stað í göngu á Pico-fjall (2.351 m), hæsta fjall Portúgals.

Göngunni stýra fjallaleiðsögumenn og leiðin liggur um stórbrotið eldfjallalandslag að tindinum. Í björtu veðri blasir við stórkostlegt útsýni yfir eyjarnar Pico, Faial, São Jorge og Graciosa.

Fyrir þá sem kjósa að fara ekki á tindinn verður boðið upp á aðra fallega gönguferð.

 

Dagur 7 – 19. apríl 2027

Pico – Faial

Möguleiki er á hvalaskoðun (valkvætt) eða frjálsum tíma í Madalena.

Síðdegis siglum við með ferju til Faial.

Við komuna heimsækjum við smábátahöfnina í Horta og hið heimsfræga Peter Café Sport, einn þekktasta samkomustað sjómanna og siglingafólks á Atlantshafi.

Gisting: Hotel Horta **** eða sambærilegt hótel. https://www.hotelhorta.pt/en/

 

Dagur 8 – 20. apríl 2027

Gönguferð um Faial og Capelinhos

Vegalengd: 7,4 km
Erfiðleikastig: Miðlungs
Göngutími: Um 2½–3 klukkustundir

Eftir morgunverð göngum við umhverfis hina stórbrotnu Caldeira, einn stærsta eldfjallagíg Azoreyja, sem er umlukinn fjölbreyttum innlendum gróðri og stórfenglegum útsýnisstöðum.

Að göngu lokinni höldum við að Capelinhos-eldfjallinu sem varð til í gosinu 1957–1958 og breytti vesturströnd Faial til frambúðar.

Við heimsækjum einnig upplýsingamiðstöð eldfjallsins áður en haldið er aftur til Horta.

 

Dagur 9 – 21. apríl 2027

Faial – São Miguel

Akstur á flugvöll og innanlandsflug til São Miguel.

Við komuna er ekið á hótelið.

Eftirmiðdagurinn er frjáls til að njóta Ponta Delgada, skoða sögulega miðbæinn, versla í litlum sérverslunum eða einfaldlega slaka á áður en heim er haldið daginn eftir.

Gisting: Hotel Ponta Delgada *** eða sambærilegt hótel.

 

Dagur 10 – 22. apríl 2027

Heimferð

Snemma morguns er ekið á flugvöllinn í Ponta Delgada og flogið til Lissabon kl 6.30 , lent kl 9.50. Siðan er flogið til Islands kl 15.00 og lent kl 1825

Verð

  • Verð per mann í 2ja manna herbergi er 497.500 kr
  • Ef einn er i herbergi bætist við 71.300 kr.

Hvað er innifalið?

  • Flug með tösku frá Keflavík
  • Hotel með morgunmat
  • Allur akstur
  • Innlendur farastjóri
  • Flugrúta (komu og brottför) á São Miguel flugvelli – Ponta Delgada
  • Flugrúta (komu og brottför) á Pico innanlandsflugvelli
  • Flugrúta (komu og brottför) á Horta innanlandsflugvelli
  • Ferja milli Pico og Horta
  • Viðurkenndur staðbundinn gönguleiðsögumaður á Pico-fjallgöngu
  • Innanlandsflug frá São Miguel til Pico - Economic Basic*
  • Innanlandsflug frá Horta til Ponta Delgada - Economic Basic*
  • Gisting með morgunverði á öllum hótelum
  • Aðgöngumiði að Capelinhos-eldfjallasafninu (Centro de Interpretação do Vulcão dos Capelinhos)
  • Aðgöngumiði að vínsafninu á Pico
  • Farastjóri: Hinrik Ólafsson

 

Fararstjóri

Hinrik Ólafsson er reynslumikill og líflegur fararstjóri sem leggur metnað sinn í að gera hverja ferð ógleymanlega. Með víðtæka þekkingu á sögu, menningu og staðháttum nær hann að glæða áfangastaðina lífi og færa ferðalöngum sögu hvers staðar á lifandi og skemmtilegan hátt.

  • Faglega reynsla: Margra ára reynsla af skipulagningu og stjórnun hópa, bæði í ævintýra- og menningarferðum.

  • Persónuleg þjónusta: Hefur ávallt öryggi, vellíðan og ánægju ferðamanna í fyrsta sæti.

  • Sögumaður af lífi og sál: Þekktur fyrir góðan húmor, frásagnargleði og hæfileikann til að skapa frábæra stemningu í hópnum.

Með Hinrik við stýrið getur þú slakað á og notið ferðalagsins í fullvissu um að allt skipulag sé í öruggum höndum.