Gisting

Heimilisfang: Via Cavour, 6 - 37060 Castel D’Azzano - Verona Símanúmer: +39 045 852 1900 Húsið var upphaflega heimili markgreifans af Malaspina 

Hotel Villa Malaspina

Heimilisfang: Via Cavour, 6 - 37060 Castel D’Azzano - Verona
Símanúmer: +39 045 852 1900


Húsið var upphaflega heimili markgreifans af Malaspina  sem var ríkur og valdamikill ráðgjafi æðsta valdamanns staðarins, Cangrande della Scala og fjölskyldu hans og erfingja. Húsið varð snemma stórbrotið herrasetur, umvafið nærliggjandi skógum og ökrum.

Colombara Turninn, sem enn gnæfir yfir nærliggjandi svæði, bar vitnisburð um hina sterku fjölskyldu og erfðir hennar. Í gegnum söguna hefur húsið orðið vitni af uppgangi Malaspina ættarinnar sem og hnignun og hrun Gonzaga ættarinnar, en á 19. öld breyttis hlutverk þess í það að vera sveitasetur ríkra íbúa Verona.

Herbergjalýsing
Hótel Villa Malaspina býður upp á 70 herbergi og junior svítur, hvert þeirra sérstaklega hannað í stærð og litum, sem öll bjóða þig hlýlega velkomin(n). Þau eru öll búin nýjustu þægindum s.s. loftræstingu, hitun, síma, gervihnattarsjónvarpi, útvarpi, keyptum sjónvarpsrásum og vídeóleigu. Internet aðgangur er til staðar auk mini bars, öryggishólfs og hárþurrku.

Sumar svíturnar eru með Whirpool nuddbaðkari og setustofu. Markmið hótelsins er að mæta öllum kröfum og óskum viðskiptavina sinna með hlýlegu viðmóti og þægindum til að þeim líði sem best.

Slökunarsvæði
Hótel Villa Malaspina býður viðskiptavinum sínum upp á róandi andrúmsloft og þá þjónustu sem svo gott er að fá eftir langan dag í skoðunarferðum um borgina og nágrenni hennar.
Hvað getur verið betra en að upplifa stund kyrrðarinnar í slökunarsvæði okkar. Njóttu þess að synda í sundlauginni, taktu á í heilsuræktaraðstöðu okkar, skokkaðu utandyra á merktum leiðum eða einfaldlega slakaðu á. Gufa, sauna, nuddpottur og sólbekkir eru í boði þegar þér hentar.

headerheaderheaderheader
Trans-Atlantic ehf. | Tryggvabraut 22 | 600 Akureyri | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya