Ferðalýsing

1 DagurFlogið með Iceland Express frá Keflavík til Bologna á Ítalíu. Við komu á flugvöll ekið með loftkældri rútu beint á hótelið Hotel Monaco í Verona.

Ferðalýsing

1 Dagur
Flogið með Iceland Express frá Keflavík til Bologna á Ítalíu. Við komu á flugvöll ekið með loftkældri rútu beint á hótelið Hotel Monaco í Verona. Þar er tekið á móti okkur með úrvali af ostum og rauðvíni úr héraðinu.

2 Dagur
Eftir morgunverð er ekið með rútu inn í sjálfa miðborg Verona þar sem við fáum að njóta Klassískrar skoðunarferðar um borgina en við heimsækjum meðal annars Arena hringleikahúsið. Ferðin er rétt tæpir 2,5 klst. Áfram gist í Verona.

3 Dagur
Eftir morgunverð förum við í skoðunarferð um Garda héraðið þar sem við heimsækjum meðal annars Lazise, Bardolino og Garda vatnið sjálft. Hádegisverður í Garda. Áfram gist í Verona.

4 Dagur
Eftir morgunverð förum við í vínsmökkunarferð í Valpolicella dalinn og njótum hádegisverðar í Sant´Ambrogio Valpolicella. Áfram gist í Verona.

5 Dagur
Eftir morgunverð förum við til Flórens þar sem við njótum einstakrar skoðunarferðar þar sem við sjáum það allra helsta sem borgin býður upp á en hún er sannkölluð gullkista en í henni er að finna mörg helstu og þekktustu verk Endurreisnartímans. Hádegisverður, en eftir hann ökum við aftur til Verona. Áfram gist í Verona.

6 Dagur
Frjáls dagur í Verona. Við vekjum athygli á þeim Skoðunarferðum sem eru í boði í Verona og eru birtar hér til hliðar en fararstjóri mun sjá um að bóka í þær ferðir eftir því sem óskað er hverju sinni. Áfram gist í Verona.

7 Dagur
Frjáls dagur í Verona. Við vekjum athygli á þeim Skoðunarferðum sem eru í boði í Verona og eru birtar hér til hliðar en fararstjóri mun sjá um að bóka í þær ferðir eftir því sem óskað er hverju sinni. Áfram gist í Verona.

8 Dagur
Eftir morgunverð er áfram frjáls dagur en upp úr hádegi er farið að undirbúa akstur aftur til Bologna í flugið heim.

headerheaderheaderheader
Trans-Atlantic ehf. | Tryggvabraut 22 | 600 Akureyri | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya