Aðeins um ferðina

Verona er ein elsta og fegursta borg Italiu og er hún á minjaskrá UNESCO. Verona er borg  Shakespeare´s Rómeó og Júlíu. Borgin er heimsfræg fyrir sínar

Verona, Flórens og Feneyjar

Verona er ein elsta og fegursta borg Italiu og er hún á minjaskrá UNESCO. Verona er borg  Shakespeare´s Rómeó og Júlíu. Borgin er heimsfræg fyrir sínar stórkostlegu sögulegu byggingar, torg, stræti og brýr yfir Adige áina.

Ekki skemmir nálægðin við Gardavatnið.  Þá má nefna Óperu hátíðina og síðast en ekki síst hringleikahúsið frá tímum Rómarveldis árið 30 fyrir Krist.

Varð Verona snemma hluti af hinu mikla Rómarveldi og geymir enn margar stórkostlegar minjar frá þeim tíma. Þekktast er Arena, hringleikahúsið fræga, þar sem óperusýningar á heimsmælikvarða eru settar á svið undir berum himni á sumrin.

Í þessari skemmtilegu og fjölbreyttu ferð er boðið upp á Verona sjálfa með skoðunarferð um borgina ásamt heimsókn í Arena hringleikahúsið, heimsókn í vötnin við Garda Lazise, Bardolino og Garda, vínsmökkunarferð í Valpolicella dalinn, heimsókn til Flórens borgar þar sem við sjáum það allra helsta þar og svo áfram til Feneyja en þaðan er ekið á brottfarardegi beint til Bologna í flugið heim.

Sjá nánari lýsingu á þessari ferð hér til hliðar undir Ferðalýsing.

FERÐAÁÆTLUN 11. ÁGÚST - 18. ÁGÚST 2012

 Flug   Brottför   Dags   Koma   Dags 
 HCC253  Keflavík  11.08.12 - 18:00  Bologna  12.08.12 - 00:05
 HCC254  Bologna  18.08.12 - 01:05  Keflavík  18.08.12 - 03:55 
   
 1 í herbergi    299.560
    
  2 í herbergi     257.900
   
3 í herbergi 249.775

Innifalið í verði ferðar er eftirfarandi:

  • Gisting á Hotel Verona með morgunmat í Verona og á Hotel Venezia í Feneyjum
  • Sérvaldir ostar og rauðvín héraðsins á hóteli í Verona
  • Flug Keflavík - Bologna (flugvöllurinn) og tilbaka ásamt öllum sköttum og gjöldum
  • Akstur frá flugvelli á hótel og tilbaka
  • Akstur frá Bologna til Verona
  • Akstur frá Verona til Flórens
  • Akstur frá Flórens til Feneyja
  • Skoðunarferð um Verona
  • Skoðunarferð um Garda vötnin ásamt hádegisverði í Garda
  • Vínsmökkunarferð í Valpolicella dalnum ásamt hádegisverði í Sant´Ambrogio Valpolicella
  • Skoðunarferð í Flórens ásamt hádegisverði
  • Íslensk fararstjórn* í ferðinni auk enskumælandi leiðsagnar frá okkar samstarfsaðila erlendis í Verona, Garda vötnunum, Valpolicella dalnum og í Flórens

*Lágmarksþátttakendafjöldi 20 manns

Þrátt fyrir að Verona sé þekkt fyrir sína einstaklega fallegu byggingar þá er hún einnig borg viðskipta og verslunar. Verona státar af sögulegri arfleið miðalda, Endurreisnar (Renaissance)  tímans og fleiri byggingarstílum. Má sjá hvernig borgin skiptist í mörg söguleg tímabil, en hjarta borgarinnar er miðaldarkjarninn með fjölda áhugaverðra minnismerkja. 

Má nefna  áhugaverða staði eins og Piazza Bra, hið gríðarstóra torg með fjölda veitingastaða , kaffihúsa og kráa. Verona  Amphiteatre Arena sem er gamla rómverska hringleikahúsið þar sem fóru fram bardagar upp á líf og dauða milli skylmingarþræla er einstaklega vel varðveitt mannvirki. Sjálfsagt bæði eitt hið stærsta og best varðveitta leikhús frá tímum rómverska keisaraveldisins. Það tekur yfir 22.000 manns.  Í dag er það notað undir menningarlega viðburði.

Þá má einnig nefna Piazza delle Erbe, eitt fallegasta torgið á Italíu. Þarna má finna fjölbreyttan markað með gamla  sögu. Á rómartímanum  var þegar komin mynd á þennan markað. Nálægt markaðnum má finna margar spennandi byggingar og listaverk.

Í Verona má sjá raunverulegt heimili fjölskyldu Júlíu (Capuleti fjölskyldan) og er húsið frá 13. öld en auðvitað ber þar hæst svalir Julíu þarundir sem Rómeó flutti sínar Sonnettur. Á hverju ári, daglega, koma hundruðir ferðamanna (meirhlutinn konur) sem setjast niður og skrifa bréf til Júlíu þar sem ástarsorgum, erfiðleikum í samböndum og annað sem kvelur mannssálina er sett fram og ráða leitað hjá henni. Ritarar Júlíu svara öllum bréfum sem skilin eru eftir persónulega með ráðum, huggun og leiðsögn líkt og Júlía hefði gert.  Einnig má sjá hús  fjölskyldu Rómeo ekki langt frá.

Ekki má svo gleyma Piazza Erbe sem er einstaklega töfrandi torg í gamla bænum með fögrum byggingum og líflegum markaði. Hérna var Forum Romanum til forna. Piazza dei Signori torgið prýða glæsilegar byggingar, ma. höll og íburðarmiklar grafir Scaligeri fjölskyldunnar. Á miðju torginu er stytta af hinum eina sanna miðalda ritsnillingi Dante.  Notalegt kaffihús kennt við hann er við torgið. Castelvecchio kastali frá 14. öld. Nú er þar stórkostlegt listaverkasafn. Duomo dómkirkjan og St. Anastasia eru merkilegar kirkjur með sögu allt frá 12 og 13. öld.  Tomba di Giuletta - gröf Júlíu - er ásamt Freskusafninu við götuna Via Shakespeare.

Það búa um 270.000 manns í Verona sem  er staðsett  milli Veneto sléttunnar, Gardavatnsins og Dolomite fjallagarðsins. Ekki aðeins er borgin stórkostleg, heldur  er náttufegurðin er umlykur hana einstök. Ár, fjöll, vötn og skógi vaxnar hliðar með olífu trjám blasa við fyrir utan borgina.

headerheaderheaderheader
Trans-Atlantic ehf. | Tryggvabraut 22 | 600 Akureyri | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya