Hotel Schnelli

Heimilisfang: Toompuiestee 37, Tallinn 10133 Símanúmer: + 372 631 0100 Hótelið er nýtt númtímahótel sem opnaði í júlí árið 2005. Hótelið er við hliðina á

Hotel Shnelli ***

Heimilisfang: Toompuiestee 37, Tallinn 10133
Símanúmer: + 372 631 0100

Hótelið er nýtt númtímahótel sem opnaði í júlí árið 2005. Hótelið er við hliðina á gamla bænum í Tallinn og beint á móti Snelli garðinum. Örstutt er í miðbæinn

Hótelið býður upp á 124 herbergi, Superior herbergi og venjuleg herbergi. Í heildina á 7 hæðum hótelsins skiptist herbergjafjöldinn í 120 tveggja manna, 2 fjölskylduherbergi og 2 eins manns herbergi fyrir hreyfihamlaða gesti. Hægt er að tengja 11 herbergi sem eru tveggja manna saman með því að opna hurð á milli þannig að auðveldara er fyrir stærri hóp ferðafélag að vera saman. Fjölskylduherbergin eru á eftstu hæð með sérstakri stofu, baðherbergi og mini bar.

Öll herbergi eru með sturtu eða baði, gervihnattarsjónvarpi, síma og ókeypis þráðlausum internetaðgangi. Hægt er að fá aukarúm inn á herbergi sé þess þörf

Á jarðhæð hótelsins er að finna Café Shnelli sem býður upp á mikið evrópskra og rússneskra rétta sem og ágætis úrvals af gómsætum kökum – hvort heldur til að borða á staðnum eða til að taka með sér.

Samstarfsaðilar hótelsins eru nokkrir sem bjóða hótelgesti velkomna þám. SpaLife Shnelli sem er Salon sem býður upp á mismunandi fegrunarmeðferðir og SPA þjónustu. Þá er einnig hægt að heimsækja LaserClinic sem býður upp á meðferðir til að fjarlægja ör og líkamshár, hrukkur og margt flr

headerheaderheaderheader
Trans-Atlantic ehf. | Tryggvabraut 22 | 600 Akureyri | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya