Hotel L´Ermitage

Heimilisfang: Toompuiestee 19, Tallinn 10137 Símanúmer: + 372 6996 400 Hotel L’Ermitage er byggt árið 2004 með freistandi staðsetningu við hjarta

Hotel L'Ermitage ***

Heimilisfang: Toompuiestee 19, Tallinn 10137
Símanúmer: + 372 6996 400

Hotel L’Ermitage er byggt árið 2004 með freistandi staðsetningu við hjarta gamla bæjarins og gróðurvaxið umhverfi. Hotel L`Ermitage er byggt í nútímalegum arkitektúr og með innréttingar sem hæfa samtímanum, koparklæðning er að utan en rómantíkin ræður ríkjum í innviðum. Það tekur aðeins 5 mínútur að ganga inn í gamla bæinn frá hótelinu

Hótelið hefur 90 herbergi, 11 eins manns og 79 tveggja manna þám. 2 Superior svítur og 1 svíta. Öll herbergi bjóða upp á sturtu eða bað, hárþurrku, mini bar, LCD sjónvarp, internetaðgang og öryggishólf. Í Superior herbergjunum og svítunni er einnig að finna Jacuzzi. Sérhæðir eru á hótelinu fyrir þá sem vilja reyklaus herbergi sem og fyrir þá sem glíma við ofnæmi

Á hótelinu er að finna finnska sauna sem er á jarðhæð hótelsins sem er opin alla daga milli 09:00 og 23:00 en hægt er að panta af sérvöldum matseðli þar einnig. Þá er hægt að taka reiðhjól á leigu á hótelinu sé þess óskað

Veitingastaðurinn er opin alla morgna milli 07:00 og 11:00 þar sem hlaðborðið með morgunmatnum bíður okkar gesta. Frá 12:00 til 23:00 er hægt að panta ýmsa Evrópska rétti af Á la Carte matseðlinum

Lobby barinn er staðsettur við hlið móttökunnar en hann er opinn alla daga frá 09:00 til 23:00 þar sem kyrrlátt umhverfið kallar á slökun við þýða lágværa tónlist og snarkið í brennandi viði í arninum

headerheaderheaderheader
Trans-Atlantic ehf. | Tryggvabraut 22 | 600 Akureyri | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya