Flýtilyklar
Aðeins um ferðina
Eftir að hafa verið undir erlendu hervaldi í um 700 ár var Lettland fullvalda ríki 1991. Síðan þá hefur landið þróast hratt og
miðpunkturinn í þeirri þróun er höfuðborgin Riga með um 750.000 íbúum, sú stærsta í Eystrasaltslöndunum.
Áður en Sovétríkin hertóku Lettland var Riga ein af áhrifamestu viðskiptaborgum Norður Evrópu. Borgin er staðsett við Daugava ánna
beggja vegna sem skilur borgina i tvo hluta, gamla bæinn og þann nýja eða Pardaugava. Fjórar brýr tengja borgarhlutana saman. Áin Daugava var fyrr á
öldum mikilvæg fyrir víkingana, þar þeir byrjuðu sína yfirreið í austurátt
Gamli bærinn í Riga er á minjaskrá UNESCO þar sem minjar borgarinnar þykja þvílíkar gersemar. Auðvelt er fyrir gangandi vegfarendur að komast á milli í gamla hluta Riga á steinilögðum strætunum þar sem sagan liggur í loftinu. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja St. Peter´s og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu
Í dag er Riga nútímaborg borg í örri þróun sem hefur margt að bjóða. Tónlist skipar þar veglegan sess, hvort sem er tónlistarhátíðir, þjóðlagatónlist eða nútíma danstónlist. Opin svæði eru víða með fallegum görðum og vel hefur tekist til við að samræma náttúruna og byggðina í kring.
Sjá nánari lýsingu á þessari ferð hér til hliðar undir Ferðalýsing.
Nákvæmar tímasetningar fyrir næstu hópferð væntanleg. Verð verða birt síðar. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig á póstlista okkar og merkja þar sérstaklega við þessa ferð þannig að þeir fái allar upplýsingar um verð og ferðatilhögun um leið og þær liggja fyrir. Að neðan getur að sjá hvað verður innifalið í komandi verðskrá.
Innifalið í Ferðakostnaði er eftirfarandi:
- Gisting með morgunmat í 2 nætur á Herrasetrinu Igata Manor House
- Gisting á öðrum hótelum í ferðinni með morgunmat
- Allar skoðunarferðir og aðgangur þar sem við á
- Hádegisverður í þjóðgarðinum og vínsmökkun
- Flug Keflavík - Tallinn og tilbaka ásamt öllum sköttum og gjöldum
- Akstur frá flugvelli á hótel og tilbaka
- Íslenskur fararstjóri
Áfangastaðir
- 2 landa sýn - Mexico og Guatemala
- 2 landa sýn - Eistland og Lettland
- 2 landa sýn - Mexico og Guatemala
- 2 landa sýn - Rússland og Eistland
- Albanía - Sérferð
- Austurriki - Linz, Salzburg og Vín
- Belgía - Feneyjar norðursins, Brügge
- Egyptaland - Hurgada og Kairó
- Eistland -Tallinn
- IBIZA - FLASS 104,5
- IBIZA - Útskriftarferðir 2012
- Indland - Yogaferð
- Ítalía - Flórens og Róm
- Ítalía - Verona, Flórens og Feneyjar
- Kína - Sérferð
- Lettland - Riga
- Mexico - Allt árið
- Portúgal - Porto
- Sri Lanka - Sérferð







