Aðeins um ferðina

Ferðaskrifstofan býður núna upp á alveg einstaka ferð á slóðir dulúðar, ótrúlegrar nátturu, landið sem í arabísku sögunum Þúsund og Ein nótt segir frá að

Aðeins um ferðina 6 - 19 Október 2012

Ferðaskrifstofan býður núna upp á alveg einstaka ferð á slóðir dulúðar, ótrúlegrar nátturu, landið sem í arabísku sögunum Þúsund og Ein nótt segir frá að Sinbad sæfari hafi farið til.

Stórkostleg náttúra, einstakt mannlíf og forn menning. Kynnstu fjölbreyttu dýralífi í safaríferð um þjóðgarð eyjunnar en þar má m.a sjá fílahjarðir, hlébarða, krókódíla, buffala, apa, slöngur og einstakt fuglalíf.

Sri Lanka er töfrandi eyja sem á ekki sinn líka og lætur engan sem hana sækir heim ósnortinn.

FERÐAÁÆTLUN 6. OKTÓBER- 19. OKTÓBER 2012
 Flug   Brottför   Dags   Koma   Dags 
 FI 450  Keflavík  06.10.12 - 07:40  London Heathrow  06.10.12 - 11:45
 UL 512  London Heathrow  06.10.12 - 21:35  Colombo Sri Lanka  07.10.12 - 12:50 
 UL 505  Colombo Sri Lanka  18.10.12 - 13:05  London Heathrow  18.10.12 - 20:05 
 FI 451  London Heathrow  19.10.12 - 21:30  Keflavík   19.10.12 - 23:10 

 

1 í herbergi     Tilboðsverð aðeins  504.700



2 í herbergi   Tilboðsverð aðeins  456.250

 
3 í herbergi  Tilboðsverð aðeins  432.750


ATH. Uppgefnir flugtímar geta breyst og verða allir skráðir farþegar látnir vita með nægum fyrirvara.


Í gegnum söguna hafa margir lagt leið sína til eyjunnar fögru sem í upphafi bar heitið Sinhaladwipa sem í lauslegri þýðingu útlegst “eyja Sinhalese” sem er heiti þjóðarinnar að fornu sem kom til eyjunnar á 6. öld fyrir Kristburð en þeir komu að sunnan í gegnum Indland. Seinna meir breyttist heiti eyjunnar í Ceylon á enskri tungu og undir því heiti er hún þekktust fram eftir eða allt til ársins 1972 þegar eyjan hlýtur sjálfstæði sitt sem lýðveldi en þá fær hún heitið Sri Lanka sem þýðir á máli heimamanna “eyjan fallega”

Merkasti söguviðburður eyjunnar er talin eiga sér stað á 3. öld fyrir Kristburð þegar búddatrúin festir rætur á eyjunni og svo aftur á 4. öld þegar brot út tönn Buddha sjálfs var smyglað til eyjunnar frá Indlandi, falið í svörtu hári prinsessunar. Helstu tímabil í sögu eyjunnar teljast vera Anuradhapura og Polonnaruwa tímaskeiðið frá 3. öld fyrir Kristburð til upphafs 13. aldar eftir Krist. Anuradhapura var meginborg eyjunnar fram að lokum 7. aldar en þá var höfuðborgin færð til Polonnaruwa í suðri til að forðast sífelldar árásir Tamila frá Indlandi sem eru Hindu-trúar. Síðasti konungur Polonnaruwa var Prakramabahu III (1287 e.Kr.) og síðasti konungur Anuradhapura var Mihidhu Fimmti (982 e.Kr)

Í upphafi 12. aldar hafa Tamilar náð varanlegri fótfestu á norðurhluta Sri Lanka og konungsríki búddatrúamanna færast æ meira suður og skiptast í tvennt; konungsdæmið í Kandy og konungsdæmið Kotte. Svona haldast málin mikið til óbreytt fram í byrjun 16. aldar þegar nýjir innrásaraðilar fara að gera vart við sig. Siðasti konungur Kandy var Sri Vikrma Rajasinhe (1798 e.Kr) og síðasti konungur Kotte var Rajasinhe Fyrsti (1557 e.Kr).

Árið 1505 varpar portúgalskt skip akkerum við Colombo og þá hefst tími nýlenduherranna, portúgala og hollendinga sem stendur óslitið fram til 1795. Þeir gera fyrst samning við konunginn í Kandy en innlima hans ríki inn í ríki konungs portúgals síðar meir. Vanefna í styrk samþykkir kongurinn í Kandy samkomulag sem hollendingar bjóða honum til að reka portúgala af höndum sér sem þeim tekst árið 1656 eftir 6 mánaða umsátur um Colombo. Árið 1795 kemur breskur floti að landi og hrekur hollendinga á brott. Fyrsti breski landstjórinn var Fedrick North 1795 – 1805 og síðastur var Greifinn af Soulbery 1926 – 1948.

Allt frá árinu 1948 til 1972 laut eyjan stjórnarskrá sem samin var og skipulögð af nefnd sem látin heita eftir síðasta landstjóranum en skv. henni var englandsdrottning æðsti stjórnandi eyjunnar og þing eyjunnar var háð samþykki breska þingsins. Svona héldust hlutirnir óbreyttir fram til 1970 þegar Samagi Permuna flokkurinn náði því í gegn að landið var lýst sjálfstætt og fékk sinn eigin forseta. Lokabreytingin á stjórnarháttum landins og formlegu sjálfstæði þess á sér svo stað 31 ágúst 1978 þegar landið var loks formlega lýst yfir sem lýðveldi “ Democratic Socialist Republic of Sri Lanka”

Saga Sri Lanka hefur allt frá sjálfstæði hennar verið mörkuð af sögu borgarastyrjaldar sem þó má segja að eigi mun lengri rætur en almennt gerist í slíkum átökum þar sem stjórnarherinn hefur í gegnum árin verið að berjast við Tamil-tígra sem rekja uppruna sinn til Indlands og eru afkomendur þeirra strandhöggsmanna sem settust að á norðurhluta eyjunnar á 12. öld. Formlegum átökum milli þessara tveggja stríðandi fylkinga lauk snemma árs 2009 og í dag geta loks víðförulir ferðamenn komið til þessa yndislega staðar og notið dásemda hans líkt og svo margir hafa gert í gegnum aldirnar.

Sir Emerson Tennet segir í ritum sínum:  “ Það er engin eyja í heiminum sem hefur kallað á jafn mikla athygli rithöfunda frá jafn mörgum og ólíkum tímum og löndum eins og Ceylon (Sri Lanka, innsk.EÖA). Það er engin þjóð, hvorki á fornum tímum eða í nútímanum sem er jafn rík af máli og sögu.... náttúra hennar, fegurð, menning, trúarbrögð, fornmenjar og framleiðsla hefur verið ríkulega gerð skil af grikkjum, rómverjum, rithöfundum frá Kína, Búrma og Indlandi sem og af landafræðingum frá Arabíu og Persíu, af könnuðum miðalda frá Ítalíu, Frakklandi og Þýskalandi. Af sérfræðingum frá Portúgal og Spáni, af ævintýra- og verslunarmönnum frá Hollandi og staðháttafræðingum frá Bretlandi “.

Kannski er Sri Lanka þó best lýst með orðum Pliny sem var rómverskur sagnaritari uppi cirka 45 e.Kristburð sem ritaði svo: “Það hefur lengi verið talið af mönnum frá eldri tímum að Taprobane (Sri Lanka, innsk. EÖA) sé annar heimur “

Góða ferð !

headerheaderheaderheader
Trans-Atlantic ehf. | Tryggvabraut 22 | 600 Akureyri | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya