Skotveiði erlendis

hópferðir,hópaferðir,fyrirtækjaferð,útskriftarferð,ferðaskrifstofa,akureyri,ibiza,mexico,portugal,albania,

Skotveiði erlendis

Bjóðum uppá skotveiði erlendis.
Við bjóðum uppá eftirfarandi lönd.
Eistland,  Lettland, Litháen, Pólland og Ungverjaland.
Það er flogið beint frá maí  til  loka september til Eystrasaltslandanna en allt árið til Póllands og Ungverjalands
Gerum tilboð i hópa jafnt sem einstaklinga

Innifalið: Gisting með morgunmat og kvöldmat, leyfi,  flug, skattur, leiðsögumaður, ferðir til og frá flugvelli
Oft er gist er í góðum bjálkahúsum á fallegu skógivöxnu svæði. 
Fyrir skotveiðimenn eru þessi lönd mjög spennandi  og  bjóða  upp á veiðar í mjög  skemmtilegu umhverfi. Veiðimenn geta komið með eigin skotvopn sem og leigt viðeigandi búnað sé þess óskað. Hafa þarf samband við embætti sýslumanns vegna þeirra skjala sem hver veiðimaður þarf að hafa með sér í ferðina. Boðið er  m.a. upp á veiðiferðir fyrir villisvín, refi, dádýr, elg og úlfa.
Mismunandi reglur gilda um hversu mikið má taka af feng með sér tilbaka af kjöti sem og hvað snýr að húð og horni. Ferðaskrifstofan útvegar þátttakendum viðkomandi upplýsingar fyrir hverja ferð.

Síðumúli 29 - 108 Reykjavík | Strandgata 29, 2 hæð, 600 Akureyri |Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya