Flýtilyklar
Aðeins um ferðina
Ferðaskrifstofan hefur nú sett saman einstaka ferð til tveggja af fallegustu borgum Evrópu, borgir sem skarta mikilli sögu, fallegum görðum og yndislegu mannlífi, ótrúlegum arkitektúr og menningu.

Pétursborg er borg mikilfengleika.
Borg með glæsta fortíð, eins konar minnismerki um liðna tíð.Íbúafjöldi hennar eru um 4 milljónir. Borgin hefur verið kölluð Feneyjar norðursins vegna margra síkja sem í henni eru. Rúmlega þrjá aldir eru liðnar síðan Pétur mikli byrjaði á því að reisa þessa stórkostlegu borg sem stendur við Finnlands flóa, en það verk hófst 1703. Borgin hefur einhverjar fallegustu byggingar Evrópu. Fyrir áhugafólk um sögu og menningu er Pétursborg gullnáma. Í borginni má finna dómkirkjur t.d Alexander Nevsky kirkjuna, minnismerki eins og Moskvu hliðið og loks mikinn fjölda safna. Er Hermitage safnið einna frægast af þeim.
Borgin er mjög lifandi í alla staði og hefur tekið töluverðum breytingum síðustu ár eins og sjá má ýmis merki um s.s vörumerki sem eru í boði. Fólk kemur til borgarinnar víða að úr fyrrum ríkjum Sovétríkjanna sem og víðs vegar að úr heiminum.
Vilji menn kíkja út fyrir borgina þá má nefna að rétt fyrir utan hana er hin glæsilega höll Katrínar keisaraynju, skírð í höfuðið á Katrínu eiginkonu Péturs mikla. Þvílíkur íburður og glæsileiki er vandfundinn. Garðurinn umhverfis höllina er ekki síðra listaverk.
Á kvöldin er hægt að fara í rómantíska kvöldgöngu meðfram einum af mörgum síkjum borgarinnar eða fara í Mariinsky leikhúsið þar sem sjá má einna þekktasta ballettflokk heimsins sýna snilli sína. Mussorgsky leikhúsið er víðfrægt og veldur listunnendum ekki vonbrigðum. Þá má fara á tónleika með sinfoníuhljómsveit Pétursborgar.
Óhætt er að segja að næturlífið sé bæði fjörugt og fjölbreytt. Ekki er hörgull á kaffihúsum, skemmtistöðum eða verslunum í þessari margrómuðu borg er lætur engan ósnortin er hana sækir heim.
Tallinn sem er ein allra fallegasta borg Evrópu hefur breyst í nútíma borg með alþjóðlegu yfirbragði á síðustu 10 árum. Þrátt fyrir það eru íbúarnir stoltastir af gamla bæjarhlutanum og er hann sá hluti borgarinnar sem mesta aðdráttaraflið hefur á ferðamenn. Þar eru götur steini lagðar, byggingar frá 11.-15. öld sem hefur tekist að varðveita ótrúlega vel. Hefur eistlendingum tekist að varðveita í raun allan gamla bæjarhlutann eins og hann leggur sig með því að reisa vegg í kringum hann. Þú ferð úr 21. öldinni beint aftur í miðaldir í sömu borginni. Getur rölt um sömu götur, milli sömu kirkna, annarra bygginga og torga og fólk gerði fyrir hundruðum árum síðan og látið hugann reika. Þar sem Tallinn er best varðveitta miðaldaborg N-Evrópu hefur henni verið bætt við á heimslista UNESCO.
Miðaldarstemning í Tallinn er engu öðru lík. Söfn, dómkirkjur,
borgarhlið, borgarveggir, klaustur, borgarturnar og stórfenglegur arkitektúr, allt á sama stað. Má nefna Torgið í gamla bænum, St Olav´s
kirkju, St. Catherine götu, Maiden turninn, Toompea kastalann, Saint Mary dómkirkjuna og Ráðhúsið. Allt eru þetta ótrúlega fallegar
byggingar frá fyrri tímum. Í gamla borgarhlutanum er hægt að fylgjast með listamönnum og handverksmönnum að störfum, ekki
ósvipað og gert var fyrr á öldum.
Í Tallinn er fjölbreytt menningarlíf og getur hver og einn örugglega fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem það eru ballettsýningar,
listasöfn, tónleikar, kvikmyndir, bjór hátíðir eða listahátíðir af einhverju tagi. Úrval veitingahúsa má
finna í Tallinn með rétti frá öllum heimshornum auk þess sem fjöldi kaffihúsa og skemmtistaða er að finna í borginni.
Verðlagið er alls ekki í samræmi við gæðin. Góða máltíð má td. fá fyrir einungis 4-5 evrur. Skemmtanalíf
stendur með miklum blóma í Tallinn, barir, næturklúbbar, diskótek og pöbbar eru flest allir staðsettir í og við gamla bæinn.
Auðvelt er að rölta á milli fjölda staða á kvöldin, ekki ósvipað og í miðbæ Reykjavíkur.
Nýjasta tískufatnaðinn má finna í Tallinn og það á ódýru verði. Sama má segja um ilmvatn, handverk og fleiri vörur.
Mikið af þessum verslunum má finna í gamla bænum. Það er því hægt er því að gera mjög góð kaup
í Tallinn.
Tallinn er borg sem fangar mann, borg sem skilur eitthvað eftir, löngu eftir að farið er þaðan.
Eistland að sumri er ekki síðri en að hausti eða vori. Þar má finna einstaklega fallegar hvítar strendur og hægt er að synda í
sjónum, enda getur hitastigið farið yfir 30 gráður. Má nefna að heilsuhótelin (Spahótel) í Eistlandi eru mjög þekkt og
bjóða upp á frábæra þjónustu á góðu verði en þau eru víða staðsett niður við ströndina.
Þá er spennandi að ferðast um sveitir Eistlands þar sem víða eru fögur sveitaþorp sem enn halda í ævagamlar hefðir. Þar
hefur tíminn svo sannarlega staðið í stað síðastliðin hundruð ár.
Innifalið í ferðakostnaði er:
- Allt flug með sköttum og gjöldum
- Gisting á Reval Park Hotel & Casino í Tallinn með morgunverði
- Skoðunarferðir skv. Ferðalýsingu í Tallinn
- Aðgöngugjöld í skoðunarferðum skv. Ferðalýsingu
- Akstur skv. dagskrá þ.m.t frá Tallinn til Pétursborgar
- Gistingu á 5th Corner Hotel í Pétursborg með morgunverði
- Skoðunarferðir skv. Ferðalýsingu í Pétursborg
- Aðgöngugjöld í skoðunarferðum skv. Ferðalýsingu
- Erlendir leiðsögumenn (enska)
- Íslensk fararstjórn
Áfangastaðir
- 3 landa sýn - Eistland, Lettland og Litháen
- 3 landa sýn - Mexico, Guatemala og Belize
- Albanía
- Balkanskaginn
- Baltic Golf - 3 landa golfferð
- Barcelona
- Belgía - Brügge
- Belgrad
- Bratislava - Slóvakía
- Costa Brava - Calella
- Dominíska lýðveldið
- Eistland -Tallinn
- Ítalía - Róm
- Indland - Kerala
- Japan - Matur & Menning
- Kína og Tíbet
- Kosta Ríka
- Króatía - Dubrovnik
- Lettland - Riga
- Malta
- Mexico - Sumar og sól
- Norður Korea
- Pólland - Gdansk
- Portúgal - Matur og Vín
- Skotland - Edinborg
- Spánn - Granada
- Sri Lanka
- Tanzania
- Uganda
- Ungverjaland - Budapest
- Útskriftarferð IBIZA
- Útskriftarferð KRÓATÍA