Flýtilyklar
Umsagnir
Ég fór með í magnaða Útskriftarferð frá Kennaraháskóla Íslands til Mexíkó
á vegum ferðaskrifstofunnar Trans-Atlantic sumarið 2008.Ég var virkilega ánægður með þessa ferð í alla staði, fararstjórarnir voru einstaklega góðir, hótelið var algjör snilld og þetta heppnaðist allt mjög vel.
Það var stolið af mér tösku með alskyns dóti í og ég þurfti að hafa samband við ferðaskrifstofuna útaf því og þjónustan hennar var til fyrirmyndar í alla staði.
Ég gef klárlega Trans-Atlantic fullt hús fyrir frábæra ferð og þjónustu í alla staði.
Ólafur Jónas Sigurðsson
Eftirfarandi grein birtist í Morgunblaðinu 2007
Það var fyrir ári um síðan sem góður hópur nemenda Verkmenntaskólans á Akureyri þurfti að velja hvert skildi halda í hina árlegu utanlandsferð þá um vorið. Hefðbundir staðir voru nefndir í bland við óhefðbundna og stefndi allt í að þessi hefðbundna Miðjarðarhafsferð yrði farin; Spánn og Grikkland voru nefnd í þessu samhengi.
Ný ferðaskrifstofa, Trans-Atlantic, bauð hins vegar upp á dálítið sem hvorki hópurinn, né ég, hafði séð áður. Svokallaða “All inclusive” ferð til Playa Del Carmen, sem er lítill bær rétt sunnan við Cancun borg í Mexikó. Þetta var eitthvað sem vert var að skoða nánar; nýr staður, spennandi og framandi umhverfi sem skólakrakkar á Íslandi eru ekkert að ?skreppa? til eins og hægt er í dag með Miðjarðarhafið.
Og spennandi var það, því þessi nýja ferðaskrifstofa lenti í þvílíkum átökum í að sanna sig að ég hef ekki séð annað eins. Það er þekkt í verðbréfabraski að “tala upp” verðmæti hlutabréfa svo þeir sem eiga bréfin, geti selt þau með hagnaði. Slíkt er að sjálfsögðu ólöglegt ef ekkert annað býr að baki, en hitt er ekki síður til, en það er að “tala niður” heilt fyrirtæki. Þar sem rýrð er kastað á rekstur þess og starfsmenn þess gerðir vafasamir í alla staði. Í daglegu tali kallast þetta baktal eða “niðurtal” á samkeppnisaðila og er því miður ekki eins ólöglegt og fyrra athæfið. Í nákvæmlega þessu lenti ferðaskrifstofan og í því ljósi ætluðum við að hætta við ferðina eins og nokkrir skólar í rauninni gerðu, en eftir töluverða skoðun á þáttum eins og réttindum nemendanna, öryggi þeirra þarna úti, hótelaðstöðu þeirra, flugfélaginu og öðru því sem nemendurna snerti, þá létum við slag standa.
Og var einhver eftirsjá í því? Svar: Nei. Alls engin.
Þarna úti beið okkar hótel í þvílíkum gæðaflokki sem ég hef ekki séð við Miðjarðarhafið. Maturinn var í hæsta gæðaflokki og aðstaða til afþreyingar sömuleiðis. Ljóst er að Mexíkanarnir eru vanir að þjónusta kröfuharða Bandaríkjamenn enda er þetta svæði (Yucatan skaginn) beint suður af Flóridaskaganum. Allt þjónustustigið er miðað við þessar kröfur og það get ég sagt að við það var staðið fullkomlega.
Eitt var það sem olli mér áhyggjum áður en við fórum, en það var þetta “All inclusive” í bæði mat og drykk, sem felur í sér að hægt er að neyta matar og drykkjar á hótelsvæðinu hvenær sem er sólarhringsins án gjalds. Hafði ég þá meiri áhyggjur af óheftri drykkju nemenda minna enda þekkist mikil drykkja í þessum utanlandsferðum framhaldsskólanna. Sjö aðrir skólar voru á svæðinu og því töluvert að hugsa um. En áhyggjur mínar urðu minniháttar þegar á leið því þeir fáu sem héldu áfram drykkju voru ekki að skapa neina teljandi erfiðleika og auðvelt var að vinna úr því sem upp kom, hvort sem var á hótelinu eða annarsstaðar.
Því megnið af þessu flotta unga fólki úr Verkmenntaskólanum á Akureyri, og hinum skólunum einnig, nutum almennrar gestrisni Mexíkananna eftir bestu getu; við skoðuðum Pýramidana, kynnntumst menningu Maya-anna, syntum með höfrungunum, fórum í fjallaferðir, skruppum í tvo daga til Kúbu og við versluðum og versluðum hvort sem er á markaði eða í verslun sem stendur jafnvel Kringlunni framar í gæðum og verði.
Í stuttu máli, þá var ferðin til Mexíkó ein sú besta sem ég hef farið og get mælt með bæði landi og þjóð, sem og þeim hjá ferðaskrifstofunni Trans-Atlantic því þau lögðu sig öll fram til að okkur liði vel og nytum ferðarinnar til hins ýtrasta, og það var nákvæmlega það sem við gerðum. Við allt var staðið, fullkomlega!
Hilmar Friðjónsson kennari við VMA
Áfangastaðir
- 2 landa sýn - Mexico og Guatemala
- 2 landa sýn - Eistland og Lettland
- 2 landa sýn - Mexico og Guatemala
- 2 landa sýn - Rússland og Eistland
- Albanía - Sérferð
- Austurriki - Linz, Salzburg og Vín
- Belgía - Feneyjar norðursins, Brügge
- Egyptaland - Hurgada og Kairó
- Eistland -Tallinn
- IBIZA - FLASS 104,5
- IBIZA - Útskriftarferðir 2012
- Indland - Yogaferð
- Ítalía - Flórens og Róm
- Ítalía - Verona, Flórens og Feneyjar
- Kína - Sérferð
- Lettland - Riga
- Mexico - Allt árið
- Portúgal - Porto
- Sri Lanka - Sérferð






