Hotel Albert

Heimilisfang: Latvia, Riga, 33 Dzirnavu Street, LV-1010 Símanúmer: + 371 673 317 17   Albert Hotel er staðsett í hjarta Riga borgar. Hótelið er nefnt

Hotel Albert ***

Heimilisfang: Latvia, Riga, 33 Dzirnavu Street, LV-1010
Símanúmer: + 371 673 317 17  

Albert Hotel er staðsett í hjarta Riga borgar.

Hótelið er nefnt eftir hinum þekkta vísindamanni Albert Einstein. Göngufjarlægð er frá hótelinu í helstu banka, sýningarhallir og söfn, íþróttamiðstöðvar, sendiráð og skrifstofur margra stærri fyrirtækja í Léttlandi. Miðaldarhlutinn í gamla bænum í Riga er í stuttri göngufjarlægð frá hótelinu.

Albert Hotel hefur 246 standard herbergi, fjölskylduherbergi og svítur á 11 hæðum. Herbergin eru loftræst og þráðlaust netsamband á herbergjum tryggir hemilisleg þægindi að heiman.
Albert Hotel var í heild sinni endurnýjað og byggt aftur upp árið 2005.

Helstu vegalengdir frá hótelinu eru eftirfarandi:

• Flugvöllurinn í Riga 10 km / 6.3 miles- 20 min með leigubíl
• Aðal járnbrautarstöðin í Riga  2 km / 1.3miles- 8 min með leigubíl
• Umferðarmiðstöðin 2 km / 1.3 miles - 8 min með leigubíl
• Ferjuhöfnin 1.0 km / 0.6 miles - 6 min með leigubíl
• Gamli miðbærinn í Riga  1.6 km / 1 miles - 17 min gangandi
• Óperan í Riga 1.3 km / 0.8 miles - 13 min gangandi
• Ethnographic Safnið 12 km / 7.5 miles - 25 min með leigubíl
• Golf vellir 10 km / 6.2 miles - 25 min  með leigubíl
• Ströndin í Jurmala 25 km / 16 miles - 30 min með leigubíl

Þjónustan á Albert Hotel hefur hlotið viðurkenningu og stenst kröfur EU.

Hótelið býður upp á þvottaþjónustu, þráðlaust internet, beina internettengingar á herbergjum, farangursgeymslu, öryggishólf, uppvakningu, bar, 24 klst. afgreiðslu í Lobbý, barnamatseðlil, Business þjónustu, fundarherbergi, starfsfólk sem veldur mörgum tungumálum þám. ensku.

Heimsæktu okkur á YouTube: http://www.youtube.com/watch?v=jUbqnMYJx9Q&feature=player_embedded
headerheaderheaderheader
Trans-Atlantic ehf. | Tryggvabraut 22 | 600 Akureyri | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya