Flýtilyklar
Aðeins um ferðina 25 - 28 Október 2012
Spennandi ferð til Riga frá Keflavík og Egilsstöðum.
Riga er meira en 800 ár gömul borg
eða frá árinu 1201. Þar blandast saman miðaldarmiðbær og nútímaborg. Gamli borgarhlutinn með sinn sjarma og hefðbundin
nútímaborg í hraðri þróun. Hvort sem það er menningin - söfn eða fallegar byggingar, listaviðburðir og verslanir með allt
það nýjasta á góðu verði - þá finnur þú það í Riga. Í Riga má finna eitt mesta samsafn af Art Noveau
eða Jugend byggingalist. Þá er næturlíf Riga orðið þekkt fyrir að vera fjörugt og dregur til sín fjölda fólks víða
að.
Eftir að hafa verið undir erlendu hervaldi í um 700 ár var Lettland fullvalda ríki 1991. Síðan þá hefur landið þróast hratt og
miðpunkturinn í þeirri þróun er höfuðborgin Riga með um 750.000 íbúum, sú stærsta í Eystrasaltslöndunum.
Áður en Sovétríkin hertóku Lettland var Riga ein af áhrifamestu viðskiptaborgum Norður Evrópu. Borgin er staðsett við Daugava ánna
beggja vegna sem skilur borgina i tvo hluta, gamla bæinn og þann nýja eða Pardaugava. Fjórar brýr tengja borgarhlutana saman. Áin Daugava var fyrr á
öldum mikilvæg fyrir víkingana, þar þeir byrjuðu sína yfirreið í austurátt
Gamli bærinn í Riga er á minjaskrá UNESCO þar sem minjar borgarinnar þykja þvílíkar gersemar. Auðvelt er fyrir gangandi vegfarendur að komast á milli í gamla hluta Riga á steinilögðum strætunum þar sem sagan liggur í loftinu. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja St. Peter´s og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu
Í dag er Riga nútímaborg borg í örri þróun sem hefur margt að bjóða. Tónlist skipar þar veglegan sess, hvort sem er tónlistarhátíðir, þjóðlagatónlist eða nútíma danstónlist. Opin svæði eru víða með fallegum görðum og vel hefur tekist til við að samræma náttúruna og byggðina í kring.
FERÐAÁÆTLUN 25. OKTÓBER - 28. OKTÓBER 2012
| Flug | Brottför | Dags | Koma | Dags |
| TA1098 | Keflavík | 25.10.12 - 06:00 | Egilsstaðir | 25.10.12 - 06:45 |
| Egilsstaðir | 25.10.12 - 07:45 | Riga | 25.10.12 - 14:45 |
|
| TA1099 | Riga | 28.10.12 - 21:00 | Egilsstaðir | 28.10.12 - 22:00 |
| Egilsstaðir | 28.10.12 - 23:00 | Keflavík | 28.10.12 - 23:45 | |
| Hotel Albert |
3 stjörnur | Tilboðsverð | |
| 1 manns herbergi | 105.900 | ||
| 2 manna herbergi | 95.900 | ||
| 3 manna herbergi |
94.400 | ||
| Hotel Domina Inn |
4 stjörnur | Tilboðsverð | |
| 1 manns herbergi | 115.400 | ||
| 2 manna herbergi | 99.900 | ||
| 3 manna herbergi |
98.900 | ||
Áfangastaðir
- 2 landa sýn - Mexico og Guatemala
- 2 landa sýn - Eistland og Lettland
- 2 landa sýn - Mexico og Guatemala
- 2 landa sýn - Rússland og Eistland
- Albanía - Sérferð
- Austurriki - Linz, Salzburg og Vín
- Belgía - Feneyjar norðursins, Brügge
- Egyptaland - Hurgada og Kairó
- Eistland -Tallinn
- IBIZA - FLASS 104,5
- IBIZA - Útskriftarferðir 2012
- Indland - Yogaferð
- Ítalía - Flórens og Róm
- Ítalía - Verona, Flórens og Feneyjar
- Kína - Sérferð
- Lettland - Riga
- Mexico - Allt árið
- Portúgal - Porto
- Sri Lanka - Sérferð






