Ferðalýsing

1 Dagur    Flugið Flogið er frá Keflavík til Kaupmannahöfn og þaðan áfram til Beijing í Kína. Komið er til Kína rétt eftir hádegi daginn eftir. 2 Dagur   

Ferðalýsing

1 Dagur    Flugið
Flogið er frá Keflavík til Kaupmannahöfn og þaðan áfram til Beijing í Kína. Komið er til Kína rétt eftir hádegi daginn eftir.

2 Dagur    Beijing
Við komu til Beijing eða Peking í Kína er tekið á móti farþegum af fulltrúa okkar þarlenda samstarfsaðila  og ekið til Marriott Beijing City Wall hótelsins. Gist er í venjulegu (Standard) herbergi. Á leiðinni gefst farþegum kostur á því að njóta útsýnis yfir borgina.

3 Dagur    Beijing – Tian´anmen Torg – Forboðna borgin – Sumarhöllin - Pekingendur
Eftir morgunverð förum við og skoðum hið fræga Tian´anmen torg sem og Forboðnu borgina sjálfa. Við borðum svo innlendan hádegisverð á hefðbundnu heimili í Hutong hverfinu. Seinni part dagsins notum við meðal annars í að heimsækja Sumarhöllina auk siglingar á Kunming vatni. Dagurinn endar svo á hefðbundinni veislu til að fagna komu farþega þar sem hinn víðkunni sérréttur Kína – Pekingönd – verður í boði en auðvitað er þessi réttur annars staðar í heiminum bara eftirlíking enda endurnar sérræktaðar eftir ákveðinni, fornri hefð. Sannarlega eitthvað sem enginn vill missa af. Innifalið er allur matur, glas af rauðvíni, gosdrykkur og bjór. Áfram er gist á Marriott Beijing City Wall.

4 Dagur    Beijing - Kínamúrinn – Kung Fu – Olympic Green
Eftir morgunverð förum við og skoðum hið fræga Tian´anmen torg sem og Forboðnu borgina sjálfa. Við borðum svo innlendan hádegisverð á hefðbundnu heimili í Hutong hverfinu. Seinni part dagsins notum við meðal annars í að heimsækja Sumarhöllina auk siglingar á Kunming vatni. Dagurinn endar svo á hefðbundinni veislu til að fagna komu farþega þar sem hinn víðkunni sérréttur Kína – Pekingönd – verður í boði en auðvitað er þessi réttur annars staðar í heiminum bara eftirlíking enda endurnar sérræktaðar eftir ákveðinni, fornri hefð. Sannarlega eitthvað sem enginn vill missa af. Innifalið er allur matur, glas af rauðvíni, gosdrykkur og bjór. Áfram er gist á Marriott Beijing City Wall.

5 Dagur    Beijing – Himnahofið - Xian
Eftir morgunverðinn heimsækjum við Temple of Heaven eða Himnahofið og njótum leiðsagnar einkakennara í hinni aldagömlu Tai Chi hreyfilist. Um hádegið er borðaður hefðbundinn matur með gosdrykkjum og eftir það heimsækjum við spennandi, sérvaldar búðir til að skoða og kaupa silki og silkivörur. Eftir það er haldið út á flugvöll og flogið til Xian borgar en þar gistum við á Sheraton Xian Hotel hótelinu.

6 Dagur    Xian – Leirherinn – Pagóðurnar – Kvöldsýning – Markaðurinn - Dumplingar
Eftir morgunverð förum við loks á einstakann stað sem er ævaforn en samt tiltölulega ungur í sögu Eftir morgunverð förum við á einstakan stað sem er ævaforn en samt tiltölulega ungur í sögu nútímans. Hér er átt við leirherinn eða Terra-Cotta Warriors.  Þetta er ótrúlegur fjöldi hermanna úr leir, í fullri líkamsstærð og með vopnum sínum og verjum.  Áttu þeir að fylgja látnum keisara yfir í eftirlífið og verða her hans í nýjum heimi. Eftir heimsóknina í þetta ótrúlega safn, njótum við hádegisverðar og gosdrykkja á hefðbundnum veitingastað. Eftir hádegið skoðum við Pagóðuna eða Big Goose Pagoda, förum á múslimamarkaðinn og endum svo daginn á kvöldsýningu sem fjallar um Tang keisaraættina og njótum einstakrar veislu um kvöldið þar sem Dumplingar (deigbögglar) eru fram bornir. Áfram er gist á Sheraton Xian Hotel.

7 Dagur    Xian – Borgarveggurinn – Gröf Hanyan - Chendu
Eftir morgunverðinn heimsækjum við gröf Hanyan og skoðum borgarvegginn sem er víðfrægur. Hádegisverður á hefðbundna vísu og loks farið á flugvöllinn til að fljúga áfram til Chengdu borgar. Gist er á Crowne Plaza hótelinu í Chengdu.

8 Dagur    Chengdu – Pöndurnar – Emai fjall
Eftir morgunverð heimsækjum við einstakan stað sem er Ræktunar- og rannsóknarstöðin fyrir pöndur.  Þessi ótrúlegu dýr eru heimsþekkt og einkennisdýr Kína svipað og koalabjörninn er einkennandi fyrir Ástralíu. Eftir hádegisverðinn höldum við að hinu þekkta fjalli Emei en við gistum þar á þriggja stjörnu  hóteli yfir nóttina.

9 Dagur    Emei fjall – Leshan Buddha – Sigling - Chengdu
Eftir morgunverðinn skoðum við fjallið betur, borðum venjulegan hádegisverð og förum í siglingu til að skoða hina gríðarstóru og glæsilegu styttu af Buddha. Eftir það er ekið aftur til Chengdu en frjáls tími er um kvöldið. Kvöldverður er ekki innifalinn þetta kvöld. Gist er á Crowne Plaza hótelinu í Chengdu.

10 Dagur    Chengdu – Dujiangyan vatnakerfið – Kuan & Zhai - Guilin
Eftir morgunverð förum við og skoðum Dujiangyan áveitukerfið sem er yfir 2.000 ára gamalt og nýtist enn meira en 40 nærliggjandi héruðum. Við njótum svo hefðbundins hádegisverðar. Seinni partinn gefst okkur kostur á verslunar- og skoðunarferð á sérstöku svæði sem er Kuan og Zhai en hét Zingren á tímum Qing keisaraættarinnar. Maður kemst í snertingu við hið almenna líf í Chengdu á þessu svæði. Kvöldverður eingöngu með gosdrykkjum en auðvitað hægt að kaupa borðvín eða bjór. Síðan förum við út á flugvöll til að ferðast til Guilin. Gistum á Sheraton Guilin Hotel hóteli.

11 Dagur    Guilin – Longsheng hrísgrjóna akrarnir – Litlu þorpin
Að loknum morgunverði er keyrt til Longsheng svæðisins þar sem við sjáum hvernig hrísgjónin eru ræktuð í Kína eftir aldagamalli hefð og fáum að smakka vínið glænýtt beint af akrinum. Síðan stönsum við í hefðbundnu smáþorpi þar sem fólkið lifir á þessari framleiðslu sem öll er unnin í höndunum. Einfaldur kvöldverður á innlenda vísu. Gistum um nóttina á yndislegu lítlu þriggja stjörnu hóteli.

12 Dagur    Guilin – vatnasigling Li River - Yangshuo
Eftir morgunverð ökum við til baka til Guilin og förum því næst í siglingu á ánni Li alla leiðina til Yangshuo en á ferðinni fáum við að njóta einstaks útsýnis. Í ferðinni er boðið upp á hádegisverð. Yangshuo er fremur lítill bær á kínverska vísu; íbúar þar eru tæplega hundrað þúsund. Gist er í Green Lotus Hotel Yangshuo.

13 Dagur    Yangshuo – Guilian – Flautuhellirinn – Fílahæðin
Eftir morgunverð er farið í skemmtilegan hjólatúr fyrir þá sem það vilja. Hinir nota tímann til að rölta áfram um bæinn. Eftir hádegisverðinn skoðum við Flautuhellinn – Red Flute Cave og Fílahæðina – Elephant Trunk Hill. Við gistum svo í Guilin á sama hóteli og síðast, Sheraton Guilin Hotel. Frjáls tími um kvöldið og ekki skipulagður kvöldverður en við mælum eindregið með fótanuddi eða sýningum sem eru nokkrar til að velja úr.

14 Dagur    Guilian – Beijing – 798 listahverfið
Eftir morgunverð höldum við út á flugvöll þaðan sem við förum aftur til Beijing. Við komu í Beijing er haldið á sama hótel og var gist á í upphafi, síðan heimsókn í hverfi 798 sem er listahverfið í borginni og hlaðborð í hádeginu þar sem blandað er saman réttum og matreiðslu frá Kína og hinum vestræna heimi. Eftir það frjáls tími þar til um kvöldið en þá er kveðjukvöldverður en með honum er boðið upp á borðvín, gosdrykki og bjór.

15 Dagur    Beijing – Kaupmannahöfn - Keflavík
Eftir morgunverð höldum við út á flugvöll þar sem við tökum okkar flug til Kaupmannahafnar og þaðan áfram til Keflavíkur. Spennadi tími í hinu forna menningarlandi Kína er að baki og við reynslunni ríkari.

Innifalið í verði ferðar er:
Flug og allir skattar og gjöld Keflavík – Kaupmannahöfn – Beijing og tilbaka
Gisting á upptöldum hótelum með fæði eins og tilgreint er
Allur akstur í ferð með lúxus rútum með loftræstingu auk 2 flaska af vatni per dag Enskumælandi leiðsögumanni auk íslenskrar fararstjórnar
Aðganseyrir á þá staði sem taldir eru upp í ferðalýsingu og þarf að greiða
VISA fyrir farþega þarf að sækja sérstaklega um og kostar aukalega Kr. 10.000-
ATH. Hver farþegi þarf að borga “þjórfé” sem eru USD 5,00 (fimm) hvern dag.

Minnum á okkar sérstöku greiðslukjör sem fellst í því að fá Vaxtalaust lán til 6 mánaða fyrir 90 % af ferðakostnaðinum. Umrætt lán gildir fyrir öll hefðbundin Visa og Master Card kort en ekki fyrir fyrirframgreidd kort eða American Express.

headerheaderheaderheader
Trans-Atlantic ehf. | Tryggvabraut 22 | 600 Akureyri | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya