Um okkur

Ferðaskrifstofan Trans-Atlantic ehf Heimilisfang: Tryggvabraut 22, 600 Akureyri Símanúmer: +354 588 8900 Kennitala: 670904 -

Um ferðaskrifstofuna

Ferðaskrifstofan Trans-Atlantic ehf

Heimilisfang:
Tryggvabraut 22, 600 Akureyri
Símanúmer: +354 588 8900
Kennitala: 670904 - 2370
Veffang:
http://www.transatlantic.is/
Netfang: info@transatlantic.is

Ferðaskrifstofan var stofnuð á haustmánuðum 2004 og starfar skv. lögum númer  117/1994, með síðari breytingum. Ferðaskrifstofan starfar með það að leiðarljósi að stuðla að auknu framboði á beinum Alferðum erlendis frá landsbyggðinni, kynna nýja áfangastaði  og kappkosta að bjóða allar ferðir á lægsta mögulega verði og á sem hagkvæmustu kjörum - viðskiptavinum og farþegum hennar til ánægju og hagsbóta

Ferðaskrifstofan er staðsett við Tryggvabraut 22 á annarri hæð, í látlausu húsnæði, enda stefnt að því að sala ferða fari að mestu leyti fram á vefnum með því að nota hann til þess að kynna til viðskiptavina okkar þá áfangastaði sem eru í boði hverju sinni, veita ítarlegar upplýsingar um hvern stað fyrir sig, koma tilboðum til skráðra aðila á okkar póstlista en að sjálfsögðu er starfsfólk okkar ávallt tilbúið til þess að veita frekari upplýsingar ef þess gerist þörf bæði í síma og í eigin persónu

Ferðaskrifstofan hefur verið með áfangastaði í boði í eftirtöldum löndum; Léttlandi, Eistlandi, Lattvíu, Rússlandi, Frakklandi, Bretlandi, Írlandi, Danmörku, Egyptalandi, Mexíkó, Bandaríkjunum, Guatemala, Belize, Portúgal, Spáni, Króatíu, Ítalíu og víðar

Ferðaskrifstofan hefur auk þessa sinnt umsýslu og rekstri á leiguflugi milli íslands og erlendra áfangastaða og er eina ferðaskrifstofan á Íslandi sem hefur sett upp leiguflug frá 3 flugvöllum samtímis – frá Keflavík, Akureyri og Egilsstöðum. Þá höfum við skipulagt og sett upp sérflug fyrir félagasamtök, starfsmannafélög, árshátíðargesti með öllum stærðum og gerðum af flugvélum og á ótrúlega marga áfangastaði

Ferðaskrifstofan sá um uppsetningu og rekstur áætlunarflugs milli Egilsstaða og Kaupmannahafnar auk sérflugs til Portúgals og Ítalíu með starfsmenn við Kárahnjúkavirkjun og samhliða því flutningi innlendra farþega á þessum flugleiðum frá 2005 til 2008

Ferðaskrifstofan hefur að auki verið í markaðskynningu og sölu erlendis með það að leiðarljósi að færa erlenda ferðamenn til landsins og hefur í þessu sambandi lagt megináherslu á að kynna og selja þjónustu innlendra ferðaþjónustuaðila til okkar viðskiptavina á Norðurlandi og á Austurlandi

headerheaderheaderheader
Trans-Atlantic ehf. | Tryggvabraut 22 | 600 Akureyri | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya