Hagnýtar upplýsingar

Indland Indland er sérstætt samfélag og dularfullt og ekki vandalaust fyrir Vesturlandabúa og raunar ekki heldur fyrir Austurlandabúa að mynda sér skoðun

Hagnýtar upplýsingar

http://www.transatlantic.is/static/gallery/indland/.resized/1157710_32772228.jpg

Indland
Indland er sérstætt samfélag og dularfullt og ekki vandalaust fyrir Vesturlandabúa og raunar ekki heldur fyrir Austurlandabúa að mynda sér skoðun um Indland og því síður að læra að meta það. Fá lönd búa yfir slíkum mætti til að vekja í senn örvæntingu og aðdáun. Tilfinningar skoðandans sveiflast í sífellu milli andstæðra skauta; gremju og aðdáunar, vantúar og skilnings, undrunar og samúðar. Indland er nú betur þekkt meðal vestrænna þjóða en nokkru sinni fyrr. Á sviði tækni má þess geta að u.þ.b. 36% starfsmönnum NASA eru Indverjar og tölvuþjónusta á Indlandi er gríðarlega stórt viðskiptamódel fyrir stórfyrirtæki á Vesturlöndum. En þrátt fyrir gríðarlegan hagvöxt á Indlandi síðastliðna áratugi er ásýnd þessara breytinga villandi. Sönn kynni milli vestræns og austræns hugsunarhátts hafa enn ekki tekist. Sá, sem kynnast vill inderskum hugsunarhætti, verður að byrja á því að kanna menningu, sem er gjörólík vestrænni menningu og ferðast í gegnum landið með opnum augum og tilbúið undir stórkostlegt ævintýri.

Lýðveldið Indland er annað fjölmennasta land jarðarinnar og það sjöunda stærsta að flatarmáli. Þar býr rétt yfir einn milljarður manns. Á síðustu árum hefur Indland vaxið mikið bæði hvað varðar fólksfjölda og áhrif á svæðinu. Í dag er indverska hagkerfið það fjórða stærsta í heiminum, ef verg þjóðarframleiðsla er mæld út frá kaupmáttarjafnvægi, hagvöxtur þar var sá annar hæsti í heiminum árið 2008. Indland er langfjölmennasta lýðræðisríkiheimsins og vaxandi hernaðarveldi, það hefur yfir að ráða kjarnorkuvopnum og einum stærsta herafla heimsins. Indland er 3,3 milljónir ferkílómetrar og töluð eru um 200 tungumál á Indlandi.
Landið er í Suður-Asíu með 7000 km langa strandlengju við Indlandshaf. Indland á landamæriað Pakistan, Kína, Búrma, Bangladess, Nepal, Bútan og Afganistan. Srí Lanka, Maldíveyjar og Indónesía eru nærliggjandi eyríki í Indlandshafi. Indland hefur verið heimili margra elstu siðmenninga veraldar og hefur fætt af sér fern af stærstu trúarbrögðum nútímans; hindúisma, búddhisma, jainisma og sikhisma.

Saga
Fyrir um 9000 árum síðan fluttist fólk til Indlands sem var nefnt Indusdals-siðmenningin um 3300 f.Kr. Á eftir fylgdi Vedic-siðmenningin sem lagði grunninn að Hindúisma og indverskri menningu. Á þriðju öld f.Kr. sameinaði Ashoka keisari mikinn hluta Suður-Asíu, Maurya keisaradæmið. Við endalok keisaradæmisins árið 180 f.kr hófst stríðsástand sem stóð í tæpa öld. Á tímabilinu 100 f.Kr til 1100 e.Kr, skiptust margir mishæfir leiðtogar um keiarakrúnuna þ.á m. Chalukyas, Cholas, Pallavas, og Pandyas. Í Suður-Indlandi á þessum tíma blómstruðu vísindi, listir og skrift var orðin afbragðs góð og vel þekkt. Margir keisarar réðu í Indlandi um árið 1000. Nokkur þessara rikja voru Mughal, Vijayanagara, og Maratha Keisaraveldin.
Bretar innlimuðu Indland sem nýlendu árið 1856. Í byrjun 20. aldarinnar hófu milljónir fólks að mótmæla friðsamlega t.d. með því að framfylgja ekki óréttlátum lögum breta. Einn leiðtogi mótmælandanna var Mahatma Gandhi, sem beitti friðsamlegum mótmælum sem nefnd var ahisma, sem þýðir ekkert ofbeldi. Þann 15. ágúst 1947 hlaut Indland sjálfstæði undan breska konungsveldinu. Stjórnarskrá Indlands var formlega tekin í notkun þann 26. janúar 1950. Fyrsti lýðræðislega kosni leiðtogi Indlands var forsetisráðherrann Jawaharlal Nehru.

Vegaáritun til Indlands
Ferðamannaáritun kostar 5800 krónur og er gild í 6 mánuði. Sendiráðið þarf um það bil viku til þess að gefa út áritun.
Umsóknareyðublaðið er á netinu: http://www.indianembassy.is/

Þjórfé
Þjórfé er oft í dag innifalið í reikningum en annars er miðað við 10-15% ofaná reikninginn.

Matur og drykkir
Indland hefur verið löngu þekkt fyrir matargerð og list. Krydd, jurtir og bragðmikill matur er aðaleinkenni indverskrar matagerðar. Almennt séð er matur ekki dýr á Indlandi. Þó er hægt sé að finna mjög dýra veitingarstaði. Alltaf kaupa vatn úr innsigluðum flöskum.

Siðir og venjur
Alltaf að taka á móti mat eða hlutum í hofum með hægri hendi þar sem Indverjar telja vinstri hendina vera óæðri þeirri hægri. Á trúarlegum stöðum þarf að gæta þess að fara alltaf úr skóm áður en gengið er inn og það þarf að hylja hendur og fætur. Þegar fólki er boðið í heimahús skal alltaf taka með sér smá gjöf (ekki alkahól), heldur t.d. blóm, súkkulaði eða einhver sætindi. Indverjar eru mjög gestrisnir og finnst mikilvægt að bjóða ábót á mat aftur og aftur. Gott er að fá sér a.m.k. einu ábót en það þarf ekki að vera mikið. Það er ókurteysi að segja nei við ábót.

Heilsa, sóttvarnir og almenn heilsuráð
Mikilvægt er að kynnt sé reglur um bólusetningu áður en ferðast er til Asíulanda, er þá Indland inn í því. Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá öllum heilsugæslustöðvum. Einnig getur indverska embættið í Reykjavík gefið ítarlegri upplýsingar hvert hægt sé að leyta.

Bollywood
Mumbai (hét áður Bombay) sameinar krafta hratt vaxandi fjármálaheims og neista kvikmyndaiðnaðar borgarinnar, sem nefnist Bollywood. Sá iðnaður hefur aldrei verið eins farsæll og einmitt nú. Bollywood, sem er stærsti kvikmyndaiðnaðurinn í heiminum þegar kemur að aðsókn og fjölda framleiddra kvikmynda, er góður mælikvarði á efnahagslegar og félagslegar breytingar sem eiga sér stað á Indlandi í dag. Í Bollywood eru framleiddar fleiri kvikmyndir en í Hollywood og fleira fólk horfir á Bollywood-myndir. Framleiðsla þeirra kostar að meðaltali um 2 milljónir Bandaríkjadala á meðan meðaltalið fyrir Hollywood-myndir er um 35 milljónir dala. Árið 2009 fékk kvikmyndin Slumdog Millionaire Óskarsverðlaunin fyrir bestu mynd.

Versla
Á Indlandi er mjög gott að versla og finna má allt milli himins og jarðar í verslunarmiðstöðum. Mikið er af verslunarmistöðum sem selja þau merki sem íslendingar þekkja vel, ásamt því að vera með veitingastaði og kvikmyndahás og má þar nefna City Walk sem dæmi. Nýlega opnaði verslunarmiðstöðin Emporio í Delhi sem aðeins selur dýrustu merkin í dag, t.d. Louis Vuitton, Prada, Todd´s, Chopard, Fendi, Jimmy Choo og Gucci svo einhver séu nefnd. Á meðal indverskra framleiðandi sem eru í heimsklassa má nefna Abu Jani Sandeep Khosla, JJ Valaya, Manish Arora og Tarun Tahiliani. Þegar verslað er á götumörkuðum að þá er hægt að prútta og þumalputtareglan er sú að lækka verðið um a.m.k. 40% af upphaflegu verði. Vinsælustu gjafir til að taka heim með sér frá Indlandi er 100% Pashmina sjöl. Það má finna mikið úrval af þeim í öllum mögulegum litum á mjög sanngjörnu verði. Besti staður til að finna þau eru Dilli Haat eða Connaught Place. 

 

Áhugaverðar vefsíður til að forvitnast frekar um Indland:

http://www.eventsinindia.com/

http://www.incredibleindia.org/

http://www.indiamike.com/

http://www.123india.com/

headerheaderheaderheader
Trans-Atlantic ehf. | Tryggvabraut 22 | 600 Akureyri | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya