Amarvilas, Agra

Oberoi Hotels & Resorts 7, Sham Nath Marg, Delhi-110 054, India Sími: 91-11-23890606 Email: reservations@oberoigroup.com Heimasíða:

Amarvilas, Agra

Oberoi Hotels & Resorts
7, Sham Nath Marg, Delhi-110 054, India
Sími: 91-11-23890606
Email: reservations@oberoigroup.com
Heimasíða: http://www.oberoihotels.com/

Amarvilas er sérlega glæsilegt hótel og hefur hlotið verðlaun sem fimmta besta hótel í heimi. Dýrðin af márískum og múghalsstíls arkitektúr gefur hótelinu eftirminnilegar tilfinningu um glæsileika og fegurð. Eitthvað sem prýðir augað jafnt sem gefur manni tilfinningu um glæsileika, þá verður einnig að nefna afburða fágaða þjónustu sem hótelinu er einu lagið. 

Frá hótelinu blasir við einn best þekkti minniskvarða ástar, hið eina sanna Taj Mahal, og er hótelið staðsett einungis 600 metrum frá byggingunni. Frá öllum herbergjum má sjá Taj Mahal, einnig frá bar og veitingarhúsum.  Amarvilas er talið eitt af bestu lúxushótelum heims, og hafa mörg mjög þekkt andlit kosið hótelið fyrir sinn fyrsta kost. Hótelið hefur úrvals herbergi í boði, og þar af nokkrar sérflokks svítur. Öll herbergi hafa þráðlaust internet, sjónvarp, geislaspilara og læsta öryggisskápa.

Amarvilas hefur í samhengi við glæsilegt hótel eitt af bestu baðhúsum heims. Hefur þá baðbúsið hlotið sérstök alþjóðarverðlaun, einnig talið eitt af 15 bestu baðhúsum Asíu (sett í annað sæti). Konunglegt yfirbragð baðhússins vekur hjá manni tilfinningu gyðju sem beðið hefur að vakna úr álögum, eða prins sem bíður glæsimeyjar sinnar á konunglegum glæsivagns. Eintsök upplifun!

Þá eru olíur og kryddjurtir sérhannaðar fyrir Amarvilas, og Oberoi hótel keðjuna. Það sem sker þetta baðhús út frá öðrum er byggingarstíllinn og einstök hallartilfinning. Ef einhvern tímann manni hafi langað að búa í höll þá er tækifærið hér. Þá að auki er glæsileg sundlaug, sauna og líkamsrækt.

Innifalið í ykkar gistingu er afnot af heilsulind, gufuböðum, sundlaugum, heitum pottum og fyrirlestrar auk morgunverðar.

headerheaderheaderheader
Trans-Atlantic ehf. | Tryggvabraut 22 | 600 Akureyri | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya