Aðeins um ferðina

hópferðir,hópaferðir,fyrirtækjaferð,útskriftarferð,ferðaskrifstofa,akureyri,ibiza,mexico,portugal,albania,

Aðeins um ferðina

ANDLEG NÆRING, HUG, HEILSURÆKT OG HVÍLD Í SÓLRÍKU INDLANDI. 

http://www.transatlantic.is/static/gallery/indland/.resized/taj-mahal.jpg

Dekurferð um Indland með yoga ívafi
Delhi - Amritsar - Shimla- Agra - Jaipur - Delhi

Einstök dekurferð um Indland með yoga ívafi -  fyrir þá sem vilja rækta sjálfan sig og upplifa ævintýralega fegurð Indlands, sögufræga staði og framandi matargerðarlist.

Gisting á lúxús hótelum ásamt aðgangi að spa og heilsulindum
Gisting á 4-5 stjörnu lúxus hótelum, Spa og heilsulindir & allt  fæði (nema hádegismatur). Allir kvöldverðir eru þema tengdir þar sem lögð er áhersla á að kynnast svæðistengdri indverskri menningu ásamt heimsóknum inn á indversk heimili.

Frábærar skoðunarferðir - helstu perlur norður Indlands
Ferðin býður upp á einstaklega vandaða dagskrá með skoðunarferðum á hverjum stað þar sem við upplifum og sjáum það markverðasta á hverju svæði, svo sem Taj Mahal, Gullna hofið í Amristar og Rauða virkið í Delhi.

Indverskur " guru " meistari á hverjum stað & íslensk fararstjórn
Íslenskir fararstjórar sem eru jafnframt lærðir yoga kennarar með í för. 
Indverskur yfirleiðsögumaður er Shaukat Pal Singh Sikand.
Yoga iðkun og kyrrðarstund á hverjum degi. Kennarar & indverskir "guru" meistarar úr nærliggjandi "ashram" eða yoga stöðvum á hverjum stað fyrir sig veita leiðsögn og kennslu. 

Sérlega hagkvæmt verð og greiðslukjör sem henta öllum! 
Lánum allan ferðakostnað í 6 mánuði vaxtalaust - hægt að dreifa á visa korti. Hafið samband við skrifstofu til að fá frekari upplýsingar um þetta.

 

FERÐATÍMABIL 6 - 16 OKTÓBER 2012

2 í herbergi    Yoga tilboðsverð 389.000 (Almennt verð: 428.780)

1 í herbergi    Yoga tilboðsverð 443.500 (Almennt verð: 487.380)


ATHUGIÐ !  Takmarkaður fjöldi sæta er í boði í þessa ferð eða aðeins 40 sæti. Því gildir að bóka sig sem fyrst til að tryggja sér sæti.


 Innifalið í Ferðakostnaði er eftirfarandi:

  • Allt flug með öllum sköttum og gjöldum þmt innanlandsflug & lestarferðir ( á 1.farrými)
  • Allur akstur milli staða skv. dagskrá ásamt vatni á flöskum á meðan keyrslu stendur
  • Gisting á 4 og 5 stjörnu hótelum eins og lýst er í dagskrá og hægt að sjá nánar undir Gisting þmt. aðgangur að Spa og heilsulindum hótela skv. dagskrá
  • Morgunmatur, kvöldverðir og kokteilboð skv. dagskrá
  • Gala kvöldverður ásamt dagskrá á indversku heimili
  • Lokakvöldverður og kveðjuhóf
  • Aðgöngugjald þegar við á skv. dagskrá í uppgefnum skoðunarferðum t.d. Taj Mahal, Gulna hofið í Amritsar og Þjóðminjasafnið
  • Indverskir "guru" meistarar úr nærliggjandi "ashram" eða yoga stöðvum
  • Þjóðdansar og önnur skemmtiatriði skv. dagskrá
  • Heimsókn og dagskrá með hinum þjóðþekta sagnfræðingi og rithöfundi Raaja Bashin
  • Fílaferð skv. dagskrá
  • Íslenskir fararstjórar
headerheaderheaderheader
Trans-Atlantic ehf. | Tryggvabraut 22 | 600 Akureyri | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya