Skoðunarferðir í Róm

Móttaka og áheyrn hjá Benedikt Páfa XVI í VatikaninuInnifalið: Loftræst rúta, leiðsögumaður rúta, aðgangur, allir skattar og gjöld. Lengd:  3,5 tímarMjög

Skoðunarferðir í Róm

Móttaka og áheyrn hjá Benedikt Páfa XVI í Vatikaninu
Innifalið: Loftræst rúta, leiðsögumaður rúta, aðgangur, allir skattar og gjöld.
Lengd:  3,5 tímar
Mjög mikilvægt er að bóka sig tímanlega í þessa ferð þar sem ævinlega komast færri að en vilja. Þá skiptir einnig máli að enginn fær aðgang að móttökunni nema viðkomandi framvísi viðeigandi staðfestingu sem gefin er út af Protocol skrifstofu Páfagarðs. Móttakan fer ýmist fram í Móttökusalnum (Audience Hall) eða á Péturstorgi, allt háð fjölda þeirra sem vilja komast að þann daginn og einnig út frá veðri. Aðgangurinn er ókeypis og ekki greitt fyrir hann sérstaklega.
Ferðin byrjar á því að við ferðumst með rútunni rólega um Róm þar sem okkar leiðsögumaður segir frá því sem fyrir augu ber á leiðinni. Meðal þess sem við sjáum á leið okkar er Piazza della Repubblica, hinn forni Aurelian virkisveggur, garðar Villa Borghese, hið forna norðurhlið Rómar við Piazza del Popolo þar sem við sjáum m.a egypska óblisku frá tímum Ramsesar II.
Þá keyrum við framhjá kastalanum San Angelo sem áður var grafhýsi Hadrian keisara.

Eftirmiðdagsferð um hina kristnu Rómarborg
Innifalið: Loftræst rúta, leiðsögumaður rúta, aðgangur, allir skattar og gjöld.
Lengd:  3 tímar
Ferðin byrjar við basilikuna sem er helguð Santa Maria Maggiore á Esquiline hæð þar sem við fáum að sjá suma af þeim dýrgripum sem þar eru hýstir. Við skoðum Holy Staircase og heimsækjum basiliku St.John in Lateran sem er dómkirkja Rómar. Þaðan höldum við áfram eftir Appian vegi, framhjá kapellunni Domine Quo Vadis áður en við komum að katakombunum, þessa neðanjarðar kirkjugarða kristinna manna og forn felustaður þeirra á tímum ofsókna. Í ferðinni er valið milli þess að skoða San Callisto, Santa Domitilla eða San Sebastiano, en ákvörðun um staðarval ræðst af mörgum ólíkum þáttum en er tilkynnt i upphafi ferðar af okkar erlenda leiðsögumanni. Ferðin endar svo með heimsókn til að skoða hið ótrúlega útsýni yfir hin fornu baðhús keisarans Caracalla.

Upplýst Rómarborg að kvöldi með kvöldverði
Innifalið: Loftræst rúta, leiðsögumaður rúta, kvöldverður með 250 ml. af borðvíni per mann, allir skattar og gjöld.
Lengd:  4 tímar
Ferðin um Rómarborg að kvöldi hefst með því að við keyrum niður eftir Via Cavour til að sjá upplýst hið forna torg Rómar, Roma Forum sem og hringleikahúsið, Colosseum. Þá er ekið í gegnum Piazza Venezia til að sjá minnismerki til heiðurs Vittorio Enmanuel II konungs. Áfram er haldið meðfram ánni Tiber, framhjá Circus Maximus þar sem kappreiðarnar voru haldar í fornu og hofi Vesturmeyja sem gættu eldsins eilífa áður en við komum að Tiberina þar sem við keyrum meðfram gyðinga fjórðinginum þar sem hæst ber koparþak samkomuhús (Synagogue) þeirra. Síðan höldum við áfram að Péturtorgi þar sem við sjáum einnig hin tilkomumiklu og klassísku súlnagöng Bernini auk Péturskirkju sjálfrar. Á leiðinni þangað keyrum við framhjá San Angelo kastalanum og Ara Pacis, friðaraltarinu frá tímum Ágústusar keisara. Þegar komið er að Piazzale Flaminio sjáum við hið fræga torg, Piazza del Popolo sem áður fyrr var hið forna norðurhlið Rómarborgar. Á leiðinni keyrum við einnig í gegnum hina frægu Villa Borghesa lystigarða, komum að hinum forna Aurelian virkisvegg til að komast að hinni þjóðsagnarkenndu götu Via Veneto sem þekkt er úr La Dolce Vita. Í lokin endum við við Trevi Fountain (gosbrunninn) þar sem þér gefst kostur á að henda ofan í hann smámynt til að tryggja að þú komir aftur til borgarinnar eilífu. Eftir ferðina er farið á hefðbundin veitingastað þar sem boðið er upp á kvöldmáltíð að hætti heimamanna með völdu borðvíni.

Á keisaralegum slóðum í Rómarborg
Innifalið: Loftræst rúta, leiðsögumaður rúta, aðgangseyrir, allir skattar og gjöld.
Lengd:  3,5 tímar
Ferðin hefst við Piazza del Esquilino en þaðan er farið til Piazza Venezia til að sjá Vittoriano, altari og minnismerki til heiðurs síðasta konungi ítalíu, Vittorio Enmanuele II. Þaðan höldum við áfram inn á Kapitol torg til að njóta panorama útsýnis fyrir hið forna aðaltorg Rómar, Roma Forum og sjá yfir á Palatine hæðir. Þá er farið niður á torgið sjálft til að skoða hina mörgu og merku menjar sem þar er að finna eins og hof Júlíusar Cesars auk þess sem við skoðum Sigurboga Konstantíusar (Constantine). Einnig förum við inn í Colosseum, hringleikahúsið sjálft sem var byggt að mestu af Vespasian keisara í kringum 72 e.Krist. Þaðan förum við í basiliku Sankti Péturs í fjötrum (San Pietro in Vincoli) en þar er að finna styttuna af Móses sem margir segja eitt af mestu snilldarverkum Michelangelo.

Vatikanið og Sixtínska kapellan
Innifalið: Loftræst rúta, leiðsögumaður rúta, aðgangseyrir, allir skattar og gjöld.
Lengd:  3,5 tímar
Við ferðumst aðeins með rútunni fyrst þar sem leiðsögumaður okkar segir frá því sem á leið okkar verður. Meðal þeirra staða sem við sjáum á leiðinni er Piazza della Repubblica, hinn forni Aurelian virkisveggur, Villa Borghesa garðarnir og Piazza del Popolo. Þar sem við erum í þessum hópi losnar hópurinn við að bíða lengi í biðröð eftir aðgangi að hinu stórkostlega safni Vatikansins.
Við fáum að sjá hinn fagra hringstiga, hin fræga teppasal (Gallery of Tapestries) og kortasalinn stóra, herbergin sem eru tileinkuð Rafael en hann skreytti þau öll. Ferðin endar svo á hinni tilkomumiklu Sixtínsku kapellu þar sem þekktustu freskur allra tíma er að finna. Freskurnar sem Michelangelo málaði að boði páfa og sýna m.a sköpun mannsins og upphaf jarðar. Sannkallað meistaraverk þar sem Michelangelo taldi sig ávallt vera fremur lítinn málara þótt bæði hans samtíðarmenn sem og allir aðrir sem á eftir hafa fylgt, segja annað. Einstök ferð sem þú mátt ekki missa af.

Heildagsferð út fyrir Róm til Vesúvíusar og Pompeii
Innifalið: Loftræst rúta, leiðsögumaður rúta, aðgangseyrir, léttur hádegisverður, allir skattar og gjöld.
Lengd:  13 tímar
Því ekki að taka einn dag og sleppa frá öllum ys og þys Rómar og fara í ævintýralega ferð út fyrir Róm. Farið er með rútu alla leið að hæðunum fyrir ofan Napólí þar sem er að finna eitt af fáum eldfjöllum í Evrópu sem enn er reglubundið virkt. Vesúvíus er auðvitað fyrst og fremst þekkt fyrir að hafa lagt borgirnar Pompeii og Herculaneum árið 79 e.Krist. Í hlíðum fjallsins má sjá umfangsmikil ummerki eftir hraunstrauma, ösku og vikur. Göngutúrinn upp á gíg fjallsins tekur um 20 mínútur og æskilegt að viðkomandi sé í sæmilegu formi. Gott er að hafa með sér létta en hlýja yfirhöfn þar sem kalt getur orðið allra eftst. Útsýnið frá fjallsbrúninni er stórkostlegt og alveg virði þess sem ferðalangurinn leggur á sig til að komast upp. Eftir þetta er tekið stutt stopp þar sem við fáum okkar léttan hádegisverð. Síðan er haldið áfram til Pompeii. Borgin sem lá undir ösku í margar aldir lítur alveg ótrúlega út, ennþá er hægt að sjá rispur og för í gangsteinum eftir vagnhjólin sem þarna voru dregin fyrir einum 2000 árum. Torg, götur, salir og önnur mannvirki vakna til lífsins þegar þú gengur þarna um og auðvelt er að detta inn í hugarheiminn og láta sig dreyma um hvernig það var að vera þarna sem almennur borgari áður. Það sem flestir þó muna eftir úr ferðinni er að upplifa og sjá eftirmyndir úr gipsi af líkömum í fullri stærð af hinum fornu og látnu íbúum borgarinnar sem fundust víða um borgina í alls konar stellingum. Sýn sem festir sig í hugann og er ekki auðvelt að gleyma. Samt þess eðlis að maður hefði ekki viljað missa af þessu.


headerheaderheaderheader
Trans-Atlantic ehf. | Tryggvabraut 22 | 600 Akureyri | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya