Flórens

Flórens - Vagga listar og menningar Firenze, eins og Ítalir kalla Flórens, er einn af þessum áfangastöðum fyrir ferðamenn sem er ávallt skilgreindur sem

Flórens

Flórens - Vagga listar og menningar

Firenze, eins og Ítalir kalla Flórens, er einn af þessum áfangastöðum fyrir ferðamenn sem er ávallt skilgreindur sem forgangsstaður til að heimsækja. Borgin hefur upp á gífurlegt úrval fallegra torga og brunna að bjóða auk úrvals af heillandi veitingastöðum, kaffihúsum, hverfiskrám og sælureitum sem bíða þess að sinna þreyttum ferðalöngum

Þá er og að finna í Flórens nútímalegar búðir, sérhönnuð hótel og skemmtilegt úrval lifandi staða í slíkri flóru að hinir þekktu forferður borgarinnar af ættum de Medici hefðu aldrei getað látið sig dreyma um slíkt. En jafn ríkuleg sem borgin er af gæðum og þjónustu sem tilheyra 21-stu öldinni þá er ástæða þess að fólk sækir borgina heim í þessum mikla mæli einfaldlega sú að í Flórens er ofgnótt af list og menningu að sjá og upplifa. Af öllum helstu listaverkum heimsins er talið að um 60% sé að finna á Ítalíu og af þeim fjölda er meira en helmingur í Flórens (skv. mati UNESCO)

Ferðaskrifstofan býður upp á sérstaka en mjög tæmandi skoðunarferð sem tryggir að okkar farþegar fái á mjög afmörkuðum tíma að kynnast öllu því helsta í borginni. Vinsamlegast kynnið ykkur þessa ferð hér til hliðar


headerheaderheaderheader
Trans-Atlantic ehf. | Tryggvabraut 22 | 600 Akureyri | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya