Flórens og Róm

hópferðir,hópaferðir,fyrirtækjaferð,útskriftarferð,ferðaskrifstofa,akureyri,ibiza,mexico,portugal,albania,

Aðeins um ferðina

Ferðaskrifstofan býður nú upp á einstaklega heillandi og áhugaverða ferð til Ítalíu þar sem tvinnast saman skoðunarferð um Flórens borg og svo nokkrir dagar í hinni rómuðu Rómarborg þar sem saga kristinnar trúar er út um allt með sjálft Vatikanið í forgrunni. Þá er óvíða að sjá og upplifa forna tíma hins rómverska heimsveldis hvort sem um er að ræða virkisveggi, rústir halla eða forn torg og hringleikahús.

Í þessari skemmtilegu og fjölbreyttu ferð er boðið upp á gistingu í Bologna að kvöldi komudags, heimsókn til Flórens næsta dag ásamt hádegisverði en þaðan er svo haldið áfram til Rómar þar sem borgin Eilífa býður okkar með allar sínar dásemdir.

Ekki er skipulögð dagskrá í Róm en við vekjum athygli á þeim áhugaverðu og spennandi skoðunarferðum sem eru í boði í Róm og hægt er að kynna sér hér til hliðar.

Sjá nánari lýsingu á þessari ferð hér til hliðar undir Ferðalýsing.

Nákvæmar tímasetningar fyrir næstu hópferð væntanleg. Verð verða birt síðar. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig á póstlista okkar og merkja þar sérstaklega við þessa ferð þannig að þeir fái allar upplýsingar um verð og ferðatilhögun um leið og þær liggja fyrir. Að neðan getur að sjá hvað verður innifalið í komandi verðskrá.


Innifalið í verði er eftirfarandi:

  • Gisting með morgunmat
  • Sérvaldir ostar og rauðvín héraðsins við komu á hótel í Bologna
  • Flug Keflavík - Bologna (flugvöllurinn) og tilbaka ásamt öllum sköttum og gjöldum
  • Akstur frá flugvelli á hótel og tilbaka
  • Akstur frá Bologna til Flórens
  • Akstur frá Flórens til Rómar
  • Skoðunarferð í Flórens ásamt hádegisverði
  • Íslensk fararstjórn* í ferðinni auk enskumælandi leiðsagnar frá okkar samstarfsaðila erlendis í Flórens

 

*Lágmarksþátttakendafjöldi 15 manns

 

headerheaderheaderheader
Trans-Atlantic ehf. | Tryggvabraut 22 | 600 Akureyri | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya