Flýtilyklar
Skoðunarferðir
Lágmarksþátttaka er 15 manns í allar ferðir. Panta verður með amk.10 daga fyrirvara áður en farið er
frá Íslandi til að vera öruggur með að komast í ferðirnar.
17 Júlí - Skoðunarferð um Gamla Bæinn í Tallinn
Innifalið: Leiðsögn
Lengd: 3 klukkutímar. Lagt af stað kl. 13:00
Við skoðum 16. aldar vegginn sem umlykur gamla bæinn. Göngutúrinn hefst með heimsókn
í dómkirkjuna Orthodox St. Alexander Nevski Cathedral, þá Toompea höllina sem er alþingishús ríkisins í dag. Einnig er gengið
meðfram veggnum á Toompea Kastala sem er mjög sérstakur. Þá munum við skoða einhverja hinna dularfullu og fjölmörgu leyniganga sem liggja inn
í virki Tallinn borgar. Þeir voru notaðir i hernaðarlegum tilgangi, til að fylgjast með óvininum, njósna um hann. Fylgjast með vopna-flutningum og
hreyfingum hermanna.
Verð krónur 4.800
20 Júlí - Laahemaa þjóðgarðurinn og miðaldar kastalinn Rakvere
Innifalið: Leiðsögn, rúta, hádegisverður
og aðgangseyrir
Lengd: 7-8 klukkutímar. Lagt af stað kl. 09:00
Byrjað er á því að heimsækja miðaldarkastalann Rakvere. Þar mun á móti
okkar taka leiðsögumaður í klæðnaði frá miðöldum og leiða okkur í gegnum kastalann sem er frá 15. öld. Hérna getur
fólk séð hvernig handverksmenn unnu á miðöldum. Þá gefst gestum einnig tækifæri til þess að taka þátt í
þeirri vinnu. Svo er farið í verksmiðju er framleiðir lín og þar getur fólk keypt það sem framleitt er td. borðdúka og
handklæði á mjög góðu verði
Í Laahemaa þjóðgarðinum er landslag mjög fjölbreytt allt frá láglendi við ströndina til fossa upp til hæða. Ferðin
gefur einnig innsýn í 18. aldar arkitektúr Eistlands upp til sveita. Komið er við á herrasetrinu Sagadi Manor House sem er dæmigert fyrir 18 -19.
öldina og var byggt af þýskum landeiganda en allt umhverfið er ægifagurt. Herrasetrið sjálft er búið húsgögnum frá 19.
öld
Verð krónur 11.600
19 Júlí - Ferð til Kadriorg hallar og Pirita svæðið
Innifalið: Leiðsögn, rúta og aðgangur að Kadriorg
höll
Lengd: 3-4 klukkutímar. Lagt af stað kl. 09:30
Kadriorg höll er í 20 mínútna keyrslu frá miðborg Tallinn. Rússneski tsarinn
Pétur fyrsti byggði höllina 1718 til heiðurs Katrínu eiginkonu sinni og var þetta sumardvalarstaður þeirra. Arkitektinn var Noccolo Michetti sem siðar
kom að byggingu Peterhof hallar í St. Pétursborg. Sagt er að tsarinn hafi sjálfur lagt fyrsta steininn. Í dag hýsir höllin málverkasafn
Eistneska þjóðminjasafnsins. Þar má finna meira en 900 vestur-evrópsk og rússnesk málverk frá 16 - 20. öld., meira en 3.000
höggmyndir og um 1.600 skreytta listmuni ss. söguleg húsgögn, glerverk og fleira. Blómagarðurinn fyrir aftan höllina hefur verið endurgerður í 18.
aldar stíl og er opinn gestum á sumrin.
Verð krónur 6.800
18 Júlí - Ferð til Rocca al Maare, Eistneska byggðasafnið
Innifalið: Leiðsögn, rúta og aðgangur
Lengd: 3-4 klukkutímar. Lagt af stað kl. 09:30
Safnið er í um 20 mínútna keyrslu frá miðborg Tallinn. Farið er út fyrir borgina.
Þar má sjá einstakt safn eistneskra bygginga á 79 hektara svæði og er það einstaklega vel staðsett við sjóinn. Gengið er
í gegnum fallegt skógarsvæði við ströndina þar sem sjá má ósvikin 18 -19. aldar arkitektúr ss. bændabýli, vindmyllur,
vatnsmyllur, kapellur, ásamt húsgögnum og húsmunum frá þessum tíma. Bændabýli frá ýmsum tímum eru þarna til
sýnis. Þarna er gott veitingahús er framreiðir ýmsa þjóðlega rétti. Í Kolu Tavern er svo boðið uppá kökur og
kaffi.
Verð krónur 5.900
21 Júlí - Ferð til Patarei sjávar virkisins og Sovét fangelsisins
Innifalið: Leiðsögn, rúta og aðgangur
Lengd: 2-3 klukkutímar. Lagt af stað kl. 09:30
Virkið er staðsett við höfnina og hafði mikla alþjóðlega þýðingu
áður fyrr. Þá munum við kynnast "Gulaginu" sem voru fangelsi notuð á tímum Sovétríkjanna og sýna í hnotskurn hvernig
vistun fanga var háttað á þessum tíma. Fangelsið var byggt 1919 og þótti fremur illræmt á Sovét tímanum. Við munum
kynnast fangelsinu sjálfu, klefunum , rimlunum. Það má svo ímynda sér hvernig var að dúsa þarna.
Verð krónur 6.700
Ópera, ballet og ýmsir viðburðir
Ferðaskrifstofan býður upp á þjónustu við sína farþega þegar
kemur að því að útvega upplýsingar um hvað er í boði hverju sinni sem og að útvega aðgöngumiða að einstökum
atburðum. Hafið samband við skrifstofu okkar vegna þessa
Veitingahúsið OLDE HANSA
Tími: 20.00. Öll kvöld og gengið frá hótelinu
þangað.
Kvöldverður á miðalda veitingahúsinu Olde Hansa. Ganga þarf frá pöntunum og greiðslu áður en farið er
að utan, þar sem veitingahúsið er mjög vinsælt og einstakt í sinni röð enda komst ævinlega færri að en vilja
Olde Hansa er langvinsælasta veitingahús Tallinn borgar. Veitingahúsið er til húsa í glæsilegri byggingu frá 13. öld og er frá
Hansatímanum, fyrrum heimili kaupmanna sem lögðu gruninn að velgengni Tallinn borgar. Veitingahúsið er þekkt fyrir sínar miðaldaveislur,
góða þjónustu og fjöruga þjóna. Það er staðsett i gamla borgarhlutanum, rétt við aðaltorg borgarinnar. Í Olde Hansa
eru gamlir borðsiðir sem og aðrir siðir í hávegum hafðir. Þjónar allir klæddir í föt frá miðöldum,
á borðum eru kertaljós, húsgögnin eru öll í miðalda stíl og lifandi tónlist leikin sem hæfir tíðarandanum. Í Olde
Hansa má alltaf búast við einhverju sérstöku. Til Olde Hansa kemur fólk til að upplifa sig sem heiðursgesti. Það kemur
inn í veislu þar sem matar og drykkjar er óspart neytt að fornum sið undir fögrum hljómum frábærra tónlistarmanna. Þú
borðar eins og þú vilt
Matseðillinn
Forréttir
• Piparrótar nautakjöt með sýrðum rjóma og kornhænueggi
• Frönsk konungleg fuglalifra paté með mildri lauksultu
• Lax frá Andalúsíu
• Súrsuð agúrka Livoninan Style ? að hætti Jarla
• Saffron að hætti Lundúna kaupmannsins
• Valin ber frá hinu blessaða Ólífu tré
• Jurtabrauð með hnetum og rúgbrauð með skinku og ferskum osti
Aðalréttur
• Vilt fuglabráð
• Villigaltarkjöt á fati - uppáhald Jarlsins af Uexkyll
• Reyk grillaður lax með hnetusósu
• Veiðipottréttur - uppáhald stórkaupmannsins von Hueck´s
• Villibráðar bjúgu heiðurskokksins Frederic´s með fíkjum og möndlum
Hliðarréttir við aðalrétt sem er hægt að panta
• Bakað reykt súrkál
• Linsubauna sósa að hætti Krossferðariddara
• Engifer næpa / rófa
Eftirréttur
• Ljúffengur rósmarín búðingur
• Eitt glas af borðvíni
Áfangastaðir
- 2 landa sýn - Mexico og Guatemala
- 2 landa sýn - Eistland og Lettland
- 2 landa sýn - Mexico og Guatemala
- 2 landa sýn - Rússland og Eistland
- Albanía - Sérferð
- Austurriki - Linz, Salzburg og Vín
- Belgía - Feneyjar norðursins, Brügge
- Egyptaland - Hurgada og Kairó
- Eistland -Tallinn
- IBIZA - FLASS 104,5
- IBIZA - Útskriftarferðir 2012
- Indland - Yogaferð
- Ítalía - Flórens og Róm
- Ítalía - Verona, Flórens og Feneyjar
- Kína - Sérferð
- Lettland - Riga
- Mexico - Allt árið
- Portúgal - Porto
- Sri Lanka - Sérferð
Leit
Ferðir í boði
TRANS-ATLANTIC






