Skoðunarferðir frá Cairo

Dagsferð til Pýramidana, Mephis og Sakkara Innifalið: Rúta loftræst, enskumælandi fararstjóri, aðgöngumiðar af öllum stöðum í ferðinni, hádegismatur,

Skoðunarferðir frá Kaíró

Dagsferð til Pýramidana, Mephis og Sakkara

Innifalið: Rúta loftræst, enskumælandi fararstjóri, aðgöngumiðar af öllum stöðum í ferðinni, hádegismatur, vatn á flöskum meðan á akstri stendur, allir skattar og gjöld.
Lengd:  8 tímar

Pýramidarnir við Giza heimsóttir, Cheops, Chepren og Mykerinus. Síðan er Sphinx mikli sóttur heim, höfuð Faró með ljónsskrokki og Valley Temple (Hof Dalsins) sem er frá sama tíma og Cheops pýramidinn. Síðan skoðum við þrepa pýramidann Zoser sem var byggður í kringum 2630 f.Krist á tímabili 3 konungaættarinnar. Loks heimsækjum við Mephis sem var höfuðborg Gamla Konugsdæmisins í ein 3.000 ár og sjáum styttu af Ramses II.


Dagsferð - Egypska Safnið, Borgarvirkið í Kairó og Gamli borgarhlutinn

Innifalið: Rúta loftræst, enskumælandi fararstjóri, aðgöngumiðar af öllum stöðum í ferðinni, hádegismatur, vatn á flöskum meðan á akstri stendur, allir skattar og gjöld.
Lengd:  7 tímar

Ferðin byrjar á því að sækja heim Egypska Safnið þar sem er að finna helstu dýrgripi egypskrar menningar en á hefðbundnum dögum eru sýndir allt að 250 þúsund ólíkir munir. Þá eru í geymslum safnsis að auki yfir 200 þúsund hlutir sem ekki eru sýndir þann dag sem þú ert í heimsókn. Sérsýning er vegna Tutankhameon sem var uppgvötuð 1920. Þá heimsækjum við Mohamed Ali Alabaster Moskuna, borgarvirkið Salah El Din sem nefnt er eftir sama leiðtoga og frelsaði Jerúsalem úr höndum kristinna manna í krossferðunum en borgarvirkið var reist af honum til að verja Kairó frá kristnum hermönnum í krossferðunum. Einnig er skoðaður Khan El-Khalili markaðurinn. Síðan skkoðum við Abu Sirga kirkjuna og samkunduhús hennar (Synagogue) og loks endum við ferðina á heimsókn í baillíkuna "Hanging Church" sem er tileinkuð Jómfrúnni Maríu og St. Dimiana en hún var byggð á 5. öld.



Kvöldferð - Sound & Light Show við Giza pýramidana

Innifalið: Rúta loftræst, enskumælandi fararstjóri, aðgöngumiðar að sýningunni, vatn á flöskum meðan á akstri stendur, allir skattar og gjöld.
Lengd:  2 tímar

Einstök kvöldsýning sem gefur þér kost á að upplifa dulúð liðinnar sögu í stórbrotnu umhverfi. Sýningin byrjar með sögunni um Sphinx sem hefur verið aðgætinn vörður borgar hinna dauðu í meira en 5 þúsund ár. Sýningin segir síðan söguna um byggingu pýramidanna og nefnir loks til sögunnar merka menn eins og Thutmosis IV, Akhnaten, Nefertiti og Tut Ankh Amon. Sýningarnar eru í boði á ensku á mismunandi tímum. Nánari upplýsingar birtar þegar nær dregur brottför.



Dagsferð - El Alamein og Alexandria

Innifalið: Rúta loftræst, enskumælandi fararstjóri, aðgöngumiðar að öllum stöðum í ferðinni, hádegisverður í Alexandríu, vatn á flöskum meðan á akstri stendur, allir skattar og gjöld.
Lengd:  16 tímar

Ferðin byrjar árla dags eða í kringum 5:30 að morgni. Ferðast er til El Alamein sem er í cirka 300 km. fjarlægð frá Kairó þar sem við heimsækjum Hernaðarsafnið sem sýnir vopn og tæki frá baráttunni við El Alamein þar sem Montgomery breski herforinginn sigraði herafla Rommels hins þýska. Síðan er kirkjugarðurinn heimsóttur þar sem hvíla hermenn frá hinum ýmsu löndum Breska Samveldisins, Grikklandi, Ítalíu og loks Þýskalandi. Síðan er ekið áfram inn í Alexandríu til að skoða súlu Pompei, skoðum katakómburnar sem eru grafnar inn í stórt klettabelti á þremur hæðum, en þær eru stærsti einstaki rómverski kirkjugarðurinn í landinu.



Hálfdagsferð - Frægir markaðir og úthverfi Kairó

Innifalið: Rúta loftræst, enskumælandi fararstjóri sem hjálpar við innkaupin, vatn á flöskum meðan á akstri stendur, allir skattar og gjöld.
Lengd:  6 tímar

Ferðin hefst í El Ghoriya hverfinu sem er mjög frægt og staðsett í El Gamalia svæðinu sem er afmarkað af El Gamalia stræti þar sem er að finna El Azhar moskuna, grafhýsi Al Hussein og Khan El Khalili markaðurinn. Við höldum síðan áfram að hinum frægu Bab (borgarhlið) en upphaflega voru þau 8 talsins en aðeins 3 eru ennþá til; Bab Zuwayla, Bab al futah og Bab El Sasr. Síðan höldum við til El Mosky en þetta hverfi var stofnað af prinsinum Ess El Din Mosk. Í hverfinu eru tvær aðalgötur, sú fyrri eiginlega eingöngu fyrir rafknúin hljóðfæri og hin fyrir ljósakrónur og skreytingar. Eftir þetta höldum við aftur á hótelið.

headerheaderheaderheader
Trans-Atlantic ehf. | Tryggvabraut 22 | 600 Akureyri | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya