Flýtilyklar
Coral Beach Rotana Resort
Í Hurghada bjóðum við upp á tvo valkosti til að mæta ólíkum óskum um kostnað við
gistinguna, mismundandi þjónustu gististaðarins sem og stærð og frágang herbergjaCoral Beach Rotana RESORT er 4 stjörnu hótel sem er staðsett rétt innan við 500 mtr. frá strönd. Hægt er að velja um eins manns, tveggja manna, þriggja manna og fjögurra manna herbergi, með og án sjávarsýnar. Öll herbergin eru með loftræstingu, síma, gervihnattasjónvarpi, mini-bar og hárþurrku. Í boði á hótelinu eru 8 Classis svítur, 2 Premier svítur, 2 Royal svítur og 111 standard herbergi
Á hótelinu er að finna úrval veitingastaða sem henta flestum ef ekki öllum
• Mermaid veitingastaðurinn þar sem hlaðborðin eru á morgnanna, hádeginu og á kvöldin með rómantísku ívafi og borðum undir berum himni
• Al Zaeem Café er hinn hefðbundi egypski kaffistaður þar sem þú getur hlustað á innlenda tónlist, drukkið rótsterkt kaffi, gripið í spil eða reykt vatnspipu Shisha
• La Tana Discotekið með lifandi andrúmslofti til að henta öllum skapgerðum. Skelltu upp brosinu og slástu í hópinn með fólki sem vill skemmta sér á kvöldin
• Blue Moon & Pool Bar. Notalegur lobbý pub auk annarra víðar á svæðinu þar sem hægt er að fá sér drykki og léttar veitingar
• Aguarius Pool & Snack Bar. Staðsettur við sundlaugina sjálfa umvafin grænum gróðri. Þessi staður býður upp á snack og kokteila yfir daginn
• Shark´s Bay Sefood Resaurant. Stórglæsilegur sjávarréttarstaður sem á eftir að kitla þína bragðlauka með úrvali af fersku sjávarfangi og ótrúlegu úrvali rétta
Á hótelinu er að finna skemmtilegt úrval af þjónustu til að upplifa slökun eða skemmta sér. Á kvöldin eru sýningar, kabarettar og aðrar uppákomur, hægt er að stunda tennis, borðtennis, strandblak, billiard og aðra leiki. Þá er boðið upp á hesta- og kamelferðir fyrir þá sem vilja gera eitthvað nýtt. Á og við ströndina er úrvals þjónusta fyrir vatnatengt sport, leiki og áhugamál en m.a rekur hótelið köfunarmiðstöð með kennslu (PADI) sem veitir viðeigandi réttindi. 2 sundlaugar eru við hótelið sjálft
Ýmis þjónusta stendur gestum til boða s.s herbergisþjónusta, þvottaþjónusta, öryggishólf í lobbý auk hefðbundina hólfa inn á herbergjum, barnaleiksvæði, verslunarmiðstöð, gjaldeyrisskipti, hótelskutla og barnarúm og vöggur. Læknisþjónusta er á hótelinu og læknir til taks 24 tíma. Greitt er sérstaklega fyrir slíka þjónustu og skal ávallt halda vel til haga kvittunum fyrir öllum slíkum greiðslum ætli viðkomandi að leita eftir endurgreiðslu þegar heim er komið. Fararstjóri aðstoðar við túlkun sé þess óskað en læknirinn er enskumælandi og með viðurkennda menntun
Allir okkar farþegar eru í ALLT INNIFALIÐ dvalarpakka sem tryggir farþegum máltíðir 3 sinnum á dag, alla innlenda drykki sem og valda erlenda og innflutta drykki og aðgang að ýmissi þjónustu
Coral Beach Rotana RESORT hótelið er staðsett á úrvals stað við krystaltært Rauða Hafið með útsýni yfir hið rómaða Hurghada kóralrif. Einkaströnd hótelsins er 1,2 km að lengd. Við vonum að þið njótið dvalarinnar
Áfangastaðir
- 2 landa sýn - Mexico og Guatemala
- 2 landa sýn - Eistland og Lettland
- 2 landa sýn - Mexico og Guatemala
- 2 landa sýn - Rússland og Eistland
- Albanía - Sérferð
- Austurriki - Linz, Salzburg og Vín
- Belgía - Feneyjar norðursins, Brügge
- Egyptaland - Hurgada og Kairó
- Eistland -Tallinn
- IBIZA - FLASS 104,5
- IBIZA - Útskriftarferðir 2012
- Indland - Yogaferð
- Ítalía - Flórens og Róm
- Ítalía - Verona, Flórens og Feneyjar
- Kína - Sérferð
- Lettland - Riga
- Mexico - Allt árið
- Portúgal - Porto
- Sri Lanka - Sérferð






