Aðeins um Kairó

Kairó er höfuðborg Egyptalands og er jafnframt stærsta borg landsins sem og í öllum löndum Araba. Þá er borgin án efa þeim borgum heimsins sem hafa

Aðeins um Kairó

Kairó er höfuðborg Egyptalands og er jafnframt stærsta borg landsins sem og í öllum löndum Araba. Þá er borgin án efa þeim borgum heimsins sem hafa hvað mesta íbúarfjölda. Borgin heitir al-Qahira á arabísku sem þýðir Sigurvegarinn en hefur einnig verið kölluð Borg hinna Þúsund Bæntaturna (Minarets). Borgin sem fyrir augu okkar ber í dag er talin stofnuð á 10. öld en hún var byggða á sama stað og hin Gamla Kairó sem rekur sögu sína allt til tíma rómverja og að sjálfsögðu tengd sögu landsins jafnvel allt til 6. aldar f.Kristburð.

Kairó er borg sem iðar af mannlífi, gríðarlegum fjölbreytileika í byggingarstílum, menjum og sögu. Borgin er hávær og mikill hraði einkennir umferðina og finnst mörgum útlendingum sem sækja hana heim jafnvel þröngt þegar gengið er um hana. Kannski ekki óeðlilegt þar sem 25 % allra Egypta búa í þessari einu borg eða um 19 milljónir manna.

Meðal áhugaverðra viðkomustaða í borginni er Khan El-Khalili markaðurinn sem rekur sögu sína sem verslunarsvæði og útimarkaður allt til ársins 1382 þegar Emírinn Djarharks el-Khalili setti fyrstur upp gistiaðstöðu fyrir sig og sitt fólk og bauð jafnframt upp á verslun og viðskipti meðan hann dvaldi á staðnum. Þá er ekki hægt að sækja Kairó heim án þess að heimsækja Egypska Safnið sem hefur að geyma mesta og ítarlegasta safnið með egypskum menjum (þarf af cirka 136.000 hlutir eru sýndir daglega), Al-Azhar moskuna sem hýsti áður næstelsta háskóla heims, Al-Azhar, sem var stofnaður 975, Al-Hakim moskuna frá 982, Koptíska safnið, rómverska virkið, Abu Sirga kirkjuna, rölta um El Moez götuna sem er án efa besti staðurinn til að kynnast og sjá áhrif islams í borginni nú eða bara kíkja á hefðbundið kaffihús.

Frá Kairó er einnig hægt að fara í dagsferðir til  El Alamein til að heimsækja Stríðsminjasafnið frá Seinni Heimsstyrjöldinni eða fara til Alexandríu til að skoða súlu Pompey eða katakómburnar frá tímum rómverja.

Þá má ekki gleyma ferðinni til að heimsækja og skoða Giza pýramidana (Cheops, Chefren og Mykerinus) en þeir eru aðeins í stuttri fjarlægð frá Kairó.

 


headerheaderheaderheader
Trans-Atlantic ehf. | Tryggvabraut 22 | 600 Akureyri | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya