Ferðalýsing

1 Dagur - 2 Nóvember   Flogið til New York og gist þar eina nótt 2 Dagur - 3 Nóvember Flogið frá New York  til Cancun í Mexíkó og haldið áfram til Puerto

Ferðalýsing

1 Dagur - 2 Nóvember  
Flogið til New York og gist þar eina nótt

2 Dagur - 3 Nóvember 
Flogið frá New York  til Cancun í Mexíkó og haldið áfram til Puerto Morelos. Farið á hótel og komið sér fyrir. Hægt að fara á strönd karabíska hafsins sem ekki á sinn líka. Eitt stærsta kóralrif heims er rétt fyrir utan ströndinni. Okkar hótel heitir Ojo de Agua

3 Dagur - 4 Nóvember
Farið og skoðað eitt af undrum veraldar Maya pýramídanna í Chichen Itza. Þeir láta engan ósnortin sem ber þá augum, þvílík mannvirki.  Chichén Itza var ein helsta borg Mayana í norðurhluta yfirráða svæðis þeirra. Gist aftur á Ojo de Agua

4 Dagur - 5 Nóvember
Kayak ferð inn á Sian Káan verndarsvæðið en síðan er farið til Bacalar.  Á Sian Káan verndarsvæðinu má finna  einn þekktasta þjóðgarð Mexíkó og er svæðið geysi fjölbreytt hvað varðar dýralíf og gróðurfar. Sian Káan er staðsett á austurströnd Yucatan skagans og er stór hluti svæðisins til að mynda regnskógasvæði. Þar má finna yfir 300 tegundir af fuglum td. páfagaukar og fjöldi spendýra eins og apar, krókódílar og jagúar. Val ferð um nóttina, næturganga í frumskóginum. Farið til  Bacalar og gist á Los Cocos.

5 Dagur - 6 Nóvember
Bacalar er nú lítill bær en var áður fyrr Maya borg sem var hertekin af Spánverjum árið 1543. Lón sem er rétt við bæinn ber sama nafn. Fuglalíf er geysi fjölbreytt þar. Síðan er farið til bæjarins Palenque sem er í Chiapas héraði og í leiðinni skoðum við Kohunlich menjar/rústir frá tímum Maya. Chiapas hérað er eitt helsta regnskógasvæðið í Mexíkó og nær það allt að landamærum Guatemala. Upplifunin við að koma í regnskóginn er einstök, dýrahljóðin (ma. apar, jagúar og fuglar) yfirgnæfa allt og allur gróðurinn er hreint magnaður. Gistum þessa nótt í indíána bænum Palenque á Plaza Palanque

6 Dagur - 7 Nóvember
Palengue bær. Maya indíánar eru áberandi hérna enda var bærinn áður fyrr höfuðstaður Pakal hins mikla sem var uppi á árunum 603-683 e.Kr. en hann var einn öflugasti Maya kóngur mið-Ameríku á sínum tíma.Við munum skoða Palenque pýramídanna en þeir eru staðsettir  inn i miðjum regnskóginum, mögnuð sjón vægast sagt. Við munum síðan skoða alveg einstaklega fallega fossa í stórkostlegu umhverfi regnskóganna í Sierra Madre fjöllunum - Madre Cascadas de Agua Azul fossarnir eru taldir eitt fallegasta  náttúrufyrirbærið í Mexíkó. Farið til San Cristobal og gist þar á Casa Mexicana

7 Dagur - 8 Nóvember
San Cristobal er borg frá 16. öld  og er einhver fallegasta borgin í Mexíkó. Þarna má sjá áhrif spænsku innrásarherjanna (Conquistadores) í bland við Maya menninguna. Spánverjar skýrðu borgina San Cristobal og var hún höfuðvígi þeirra í Chiapas héraði. Hefur borgin viðhaldið sínum gamla sjarma með þröngar götur, gamlar kirkjur og markaði þar sem Mayar selja sinn skrautlega fatnað. Þá munum við kynnast fornum siðum og venjum Mayana í San Juan Chamula. Það er bær í Chiapas fylki og er staðsettur  í 2.200 metra hæð. Hann er heimkynni þeirra Maya er tala Tzotzil tungumálið. Þessi bær er sérstakur að mörgu leiti. Hann nýtur sérstakrar stöðu í Mexíkó. Mexikósk yfirvöld þurfa að sækja um leyfi ætli þau að skipta sér af málum þar. Engin utanaðkomandi her eða lögregla er leyft að koma inn í bæinn. Þarna lifa indíánarnir í friði fyrir umheiminum og rækta sitt land og framleiða sínar afurðir. Þú ferð aftur í tíma og rúmi.  Við förum í bátsferð niður ánna Grijalva, en áin rennur niður hið stórkostlega  Sumidero gil. Stórbrotið umhverfi blasir við hvert sem litið er. Brattir klettaveggirnir eru allt að 900 metrar yfir sjávarmáli. Í  gilinu er mikið dýralíf þar á meðal krókódílar og apar. Gist  aftur á Casa Mexicana.

8 Dagur - 9 Nóvember
Við förum til Frontera Corozal sem er við landamæri regnskóga svæðis Guatemala. Farið  yfir landamærin til Guatemala og endum daginn í Flores  sem er lítill friðsæll bær sem staðsettur er á eyju í vatninu Lago Pétén Itzá. Þar gistum við á La Casona.

9 Dagur - 10 Nóvember
Tikal var stærsta borg Maya þegar menning þeirra reis sem hæst og miðstöð menningar og stjórnsýslu. Munum við skoða rústir borgarinnar sem staðsett er í El Peten héraði. Borgin er á minjaskrá UNESCO og er þekktasti þjóðgarður Gvatemala kenndur við Tikal. Má rekja upphaf hennar aftur 4 aldar. Umhverfið er ævintýri líkast, þarna má sjá menjar borgarinnar í miðjum regnskóginum. Förum tilbaka til Mexíkó og gistum í  Escudo Jaguar

10 Dagur - 11 Nóvember
Förum til Yaxchilan fornleifasvæðisins. Förum svo til  Calakmul. Þennan dag munum við sjá regnskóg, ár og Maya þorp. Gistum á Debliz hótelinu.

11 Dagur - 12 Nóvember
Calakmul er stærsta náttúruverndarsvæði landsins.  Þar er möguleiki á  að sjá dádýr, apa, fugla og mörg önnur dýr. Talið er að á svæðinu hafi áður fyrr búið yfir 50.000 Maya indíánar. Calakmul þýðir á Maya máli borg hinna aðliggjandi pýramída. Förum til Puerto Morelos og gistum þar á Ojo de Agua.
  
12 Dagur - 13 Nóvember
Flogið frá Cancun í Mexíkó til New York í Bandaríkjunum og gist í New York eina nótt.
 
13 Dagur - 14 Nóvember
Frjáls dagur í Stóra Eplinu – New York. Farið til Íslands um kvöldið og lent í Keflavik morguninn eftir

headerheaderheaderheader
Trans-Atlantic ehf. | Tryggvabraut 22 | 600 Akureyri | Sími 588 8900 | info@transatlantic.is | www.transatlantic.is
Vertu vinur okkar á FacebookStefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya